Björg Eva Erlendsdóttir ráðin framkvæmdastjóri Landverndar

Björg Eva Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar
Björg Eva Erlendsdóttir er framkvæmdastjóri Landverndar.

Björg Eva Erlendsdóttir verður nýr framkvæmdastjóri Landverndar og hefur hún störf í október. Stjórn Landverndar samdi við Björgu Evu, eftir að Auður Önnu- Magnúsdóttir sagði starfi sínu lausu í vor.

Stjórn Landverndar horfði til þess að Björg Eva hefur víðtæka reynslu af rekstri félagasamtaka, reynslu úr fjölmiðlum og úr alþjóðastarfi á norrænum vettvangi. Nú síðast starfaði hún sem framkvæmdastjóri Vinstri grænna. Stjórnin metur einnig mikils að í ráðningaferlinu sýndi Björg Eva eldmóð fyrir málefnum náttúru og umhverfisverndar, enda hefur hún tekið þátt í náttúruverndarbaráttu lengst af ævinnar.

Framkvæmdastjóri  Landverndar ber ábyrgð á og stýrir daglegum rekstri og fjármálum ásamt því að annast fjáröflun samtakanna og gerð fjárhagsáætlana og fjárhagsskýrslna. Þá kemur framkvæmdarstjóri fyrir hönd Landverndar í opinberri umræðu, gagnvart þriðja aðila og dómsstólum.

Stjórn Landverndar hlakkar til þess að starfa með Björgu Evu og vill einnig nýta tækifærið til þess að þakka Auði Önnu Magnúsdóttur, fráfarandi framkvæmdastjóra fyrir störf sín í þágu samtakanna.

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd