Landvernd og Eldvötn – samtök um náttúruvernd í Skaftárhreppi efna til málþings um áhrif virkjana í Skaftárhreppi í Norræna húsinu laugardaginn 5. maí kl. 12-15.
Um tvær virkjanahugmyndir við Fjallabakssvæðið er að ræða; Búlandsvirkjun í Skaftártungu (í Skaftá og Tungufljóti) og Atleyjarvirkjun ustan Mýrdalsjökuls (í Hólmsá).
Dagskrá
12:00 Setning málþings: ólafía Jakobsdóttir, formaður Eldvatna
12:10 Jarðfræði og lífríki Skaftárhrepps: Haukur Jóhannesson, jarðfræðingur og Snorri Baldursson, þjóðgarðsvörður
12:40 Mat faghóps I í rammaáætlun á áhrifum virkjana í Skaftárhreppi: Þóra Ellen Þórhallsdóttir, prófessor
13:00 Myndir og fróðleikur af fyrirhugaðri virkjanaslóð í Skaftártungu: Vigfús Gunnar Gíslason, framkvæmdastjóri, frá Flögu
13:20 Kaffi
13:40 Landbúnaður og virkjanir: Heiða Guðný Ásgeirsdóttir, bóndi, Ljótarstöðum
14:00 Landslag, fegurð og fólk: Guðbjörg Jóhannesdóttir, doktorsnemi
14:20 Umræður
14:50 Samantekt og slit málþings
Fundarstjóri: Guðmundur Ingi Guðbrandsson, framkvæmdastjóri Landverndar