Stjórn Landverndar óskar eftir framboðum til stjórnar. Ár hvert er kosið í fimm embætti til tveggja ára. Í ár er kosið í fjögur stjórnarsæti auk formannsembættis. Kjörgengir eru skráðir félagar, sem og fulltrúar félaga og samtaka í Landvernd, sem eru skuldlausir við samtökin.
Framboð skulu berast á netfangið landvernd@landvernd.is fyrir miðnætti föstudaginn 9. maí.
Kosning fer fram rafrænt og hefst 20. maí og lýkur henni á aðalfundi Landverndar sem haldinn verður 23. maí.
Við hvetjum alla félaga til að taka daginn frá.