Skólar á grænni grein standa fyrir fundunum Gæðaskólar á grænni grein – Fundir skólastiga í febrúar og mars 2021.
Á fundinum kynnum við nýtt námsefni, ræðum um menntun til sjálfbærni og miðlum góðum og praktískum verkefnum frá skólum sem eru á grænni grein.
Öll velkomin
Fundirnir eru vettvangur fyrir skólafólk til að miðla, læra og tengjast öðrum í sömu sporum. Við beinum sjónum að því hvernig skólar vinna að menntun til sjálfbærni.
Fundurnir eru að þessu sinni opnir öllum, einnig þeim sem eru ekki skráðir á græna grein. Skólar geta sent eins marga fulltrúa á fundina og þeir vilja.
Fjarfundur
Fundurinn fer fram á Zoom. Athugið að sumir skólar geta aðeins tengst við Zoom í gegnum vafra. Hér eru leiðbeiningar um hvernig má tengjast ZOOM í gegnum vafra. Skólar sem hafa ekki leyfi til að hlaða niður forritinu (m.a. skólar í Reykjavík) geta tengst fundinum í gegnum vafra.
Skráðir þátttakendur fá sendan tengil á netfundarstað fyrir fundinn. Skráningu er lokið á þennan viðburð.
Dagskrá 1. febrúar 2021
13:00 – 13:30 Opnun, stutt skilaboð frá Skólum á grænni grein.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, Umhverfis- og auðlindaráðherra, opnar fundinn.
13:30 – 14:00 Nýjungar hjá Skólum á grænni grein.
Þátttakendur velja eina af þremur vinnustofum:
- Lifandi náttúra – lífbreytileiki á tækniöld: Nýtt námsefni fyrir yngsta stig þar sem lífbreytileiki er rauður þráður. Sigurlaug Arnardóttir kynnir.
- Ungt umhverfisfréttafólk – gefum unga fólkinu rödd: Verkefni fyrir unglingastig um miðlun upplýsinga um umhverfismál. Katrín Magnúsdóttir kynnir.
- Skólar á grænni grein – leiðandi í menntun til sjálfbærni: Um Skóla á grænni grein og tengsl verkefnisins við menntun til sjálfbærni. Margrét Hugadóttir kynnir.
14:00-14:40 Brot af því besta: Reyndir grænfánaskólar kynna verkefni sem snúa að þverfagleika og þátttöku alls skólasamfélagsins.
Vatnsverkefni í útinámi – Kerhólsskóli
Guðrún Ása Kristleifsdóttir
Útinámið í Kerhólsskóla var að hluta til tileinkað Grænfánaþemanu okkar síðasta vetur. Þemað okkar var vatnið og það voru keyrð 7 mismunandi vatnsverkefni á 7 vikum. Allur grunnskólinn og elstu nemendur leikskólans tóku þátt í verkefninu sem að tókst einstaklega vel.
Fjallgöngur – Hvolsskóli.
Þórunn Óskarsdóttir
Verkefnið „Fjallgöngur í Hvolsskóla” byrjaði haustið 2013. Markmið þessa verkefnis er að þegar nemendur ljúka grunnskólagöngu sinni hafa gengið á 10 fjöll í sýslunni sinni, Rangárvallasýslu. Verkefnið tengist mörgum markmiðum úr aðalnámskrá grunnskóla s.s. að auka þekkingu á umhverfi sínu, að efla hreyfingu og að þekkja örnefni.
14:40-15:00 Kaffihlé
15:00-15:40 Brot af því besta: Reyndir grænfánaskólar kynna verkefni sem snúa að þverfagleika og þátttöku alls skólasamfélagsins.
Óbyggileg jörð – Öldutúnsskóli
Aðalheiður Steinarsdóttir
Nemendur á unglingastigi takast á við loftslagsbreytingar og hanna sér ný heimkynni. Aðalheiður Steinarsdóttir
Logalandsskógur, samstarfsfverkefni – Grunnskóla Borgarfjarðar.
Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir