Gæðaskólar – Fundur fyrir framhaldsskóla 1. mars 2021

Gæðaskólar á grænni grein eru leiðandi í menntun til sjálfbærni á Íslandi
Gæðaskólar á grænni grein - Framhaldsskólar verður haldinn þann 1. mars nk. Hér má finna dagskrá og upplýsingar um fundinn.

Skólar á grænni grein standa fyrir fundunum Gæðaskólar á grænni grein – Fundir skólastiga í febrúar og mars 2021. 

Á fundinum kynnum við nýtt námsefni, ræðum um menntun til sjálfbærni og miðlum góðum og praktískum verkefnum frá skólum sem eru á grænni grein.

Öll velkomin

Fundirnir eru vettvangur fyrir skólafólk til að miðla, læra og tengjast öðrum í sömu sporum. Við beinum sjónum að því hvernig skólar vinna að menntun til sjálfbærni. 
Fundurnir eru að þessu sinni opnir öllum, einnig þeim sem eru ekki skráðir á græna grein.  Skólar geta sent eins marga fulltrúa á fundina og þeir vilja. 

Fjarfundur

Fundurinn fer fram á Zoom. Athugið að sumir skólar geta aðeins tengst við Zoom í gegnum vafra. Hér eru leiðbeiningar um hvernig má tengjast ZOOM í gegnum vafra. Skólar sem hafa ekki leyfi til að hlaða niður forritinu (m.a. skólar í Reykjavík) geta tengst fundinum í gegnum vafra.  

Skráðir þátttakendur fá sendan tengil á netfundarstað fyrir fundinn. 

Dagskrá 1. mars 2021

13:00 – 13:30 Opnun, stutt skilaboð frá Skólum á grænni grein.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, Umhverfis- og auðlindaráðherra, opnar fundinn. 

13:30 – 14:00 Nýjungar hjá Skólum á grænni grein. 
Þátttakendur velja eina af þremur vinnustofum:

 

  1. Náttúra til framtíðar – Nýtt námsefni um vistheimt
  2. Ungt umhverfisfréttafólk – Verkefni um miðlun upplýsinga um umhverfismál
  3. Skólar á grænni grein – leiðandi í menntun til sjálfbærni

14:00-14:45 Brot af því besta: Reyndir grænfánaskólar kynna verkefni sem snúa að þverfagleika og þátttöku alls skólasamfélagsins. Tvær kynningar fara fram samtímis og velja gestir kynningu á fundinum sjálfum.  
14:00 – 14:20 VAL UM:
a. Ganga til Tene – Fjölbrautaskóli Vesturlands Akranesi
b. Umhverfismál á dönsku – Menntaskólinn á Tröllaskaga

14:25 – 14:45 VAL UM: 
a. Fataneysla – fatasóun – endurnýting – Verkmenntaskóli Austurlands
b. Vistheimt í Merkurhrauni – Fjölbrautaskóli Suðurlands

 

14:45-15:00 Kaffihlé

 

15:00-15:20 Hvers vegna umhverfisráð? Hvernig má virkja nemendur til þátttöku í umhverfismálum? – Fjölbrautaskólinn við Ármúla. 

15:20-15:45 Græn skref og Skólar á grænni grein – Hvernig má samþætta þessi verkefni? – Umhverfisstofnun, Landvernd og Menntaskólinn á Tröllaskaga.

15:45 Afmælisár Skóla á grænni grein 2021-2022. Skólar á grænni grein á Íslandi fagna 20 ára afmæli: Hvernig fögnum við saman? Hugstormun.

16:00 Fundarslit
 

Nánar um landshlutafundi

Fundir Skóla á grænni grein eru hluti af starfsþróun kennara í þátttökuskólum verkefnisins. Landshlutafundir eru haldnir annað hvert ár á móti ráðstefnu og eru að jafnaði tíu talsins á tíu mismunandi stöðum á landinu. Á fundina mæta fulltrúar frá skólum af sama svæði á landinu. Þetta er liður í því að tengja saman skóla á sama svæði og hvetja til samvinnu og samtals á milli skóla. Þó fundirnir séu sérstaklega miðaðir að skólum í verkefninu eru þeir einnig opnir fulltrúum annarra skóla.

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd