Háskóli Íslands fær grænfánann í fyrsta sinn

Háskóli Íslands tók við fyrsta grænfánanum fyrir vel unnin störf í þágu loftslagsmála, landvernd.is
Háskóli Íslands fékk sinn fyrsta grænfána afhentan við hátíðlega athöfn þann 4. mars 2020. Grænfáninn er alþjóðleg viðurkenning til skóla á grænni grein sem sinna umhverfismennt og innleiða menntun til sjálfbærni í skólastarfið.

Háskóli Íslands fékk sinn fyrsta grænfána afhentan við hátíðlega athöfn þann 4. mars 2020.

Grænfáninn er alþjóðleg viðurkenning til skóla á grænni grein sem sinna umhverfismennt og innleiða menntun til sjálfbærni í skólastarfið.  

Verkefnið er stærsta umhverfismenntaverkefni í heimi og er haldið úti af samtökunum Foundation for Environmental Education. Landvernd hefur umsjón með verkefninu á Íslandi.

Skólinn skráði sig til leiks í verkefnið á vordögum 2019 og hefur Umhverfis- og samgöngunefnd Stúdentaráðs Háskóla Íslands, í samvinnu við aðila innan og utan skólans, unnið hörðum höndum að því að uppfylla kröfur verkefnisins. Skólinn er þar með kominn í hóp 125 háskóla um allan heim sem eru með í verkefninu og meðal 44 háskóla sem hafa fengið grænfánaviðurkenninguna afhenta á heimsvísu.

Nefndin setti sér metnaðarfulla aðgerðaráætlun. Markmiðin voru meðal annars að;

  • auka fræðslu innan skólans um umhverfismál,
  • gera mötuneyti Háskólans loftslagsvænni með auknu framboði á grænkerafæði og minni matarsóun ,
  • minnka umhverfisáhrif samgangna nemenda og starfsmanna.

Umhverfismálin fengu einnig aukið vægi á net- og samfélagsmiðlum Háskólans og viðburðir sem tengjast málefninu voru haldnir. Hér má lesa nánar má lesa um markmið og aðgerðir Háskóla Íslands í verkefninu.

Á meðfylgjandi myndum veitir Aðalbjörg Egilsdóttir, forseti umhverfis- og samgöngunefndar fánanum viðtöku ásamt fleiri fulltrúum nefndarinnar auk Þorbjörgu Söndru Bakke, verkefnisstjóra sjálfbærni- og umhverfismála og Guðbjörgu Lindu Rafnsdóttur, aðstoðarrektor.

 

Katrín Magnúsdóttir, verkefnastjóri Skóla á grænni grein afhendir formanni umhverfisnefndar fyrsta grænfánann, landvernd.is

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd