Sumardagskrá í Alviðru: Jónsmessuganga 24. júní 2023

Jónsmessuganga í hlíðum Ingólfsfjalls við Alviðru, landvernd.is
Verið öll velkomin í árlega Jónsmessugöngu Landverndar laugardaginn 24. júní.

Laugardaginn 24. júní 2021 kl. 14:00 verður boðið upp á Jónsmessugöngu upp á Ingólfsfjall 

Gengið verður frá bænum Alviðru (Sjá á korti)  eftir merktri gönguleið um gönguskarð ofan við bæinn og upp að Inghól, þar sem Ingólfur landsnámsmaður var heygður. Þaðan er afar víðsýnt á góðum degi. Gangan upp og niður er brött og nokkuð erfið en gönguleiðin á fjallinu er auðveld. Ætla má að gangan taki um 3 til 4  klukkustundir.

Munið göngustaf, haldgóða skó, hlífðarföt og nestisbita. Leiðsögumaður er Tryggvi Felixson fv. formaður Landverndar.

Boðið verður upp á kakó og kleinur í bænum að aflokinni göngu.

Þeim sem ekki treysta sér á fjallið er bent á ákaflega áhugaverða, fallega, vel  merkta og auðfarna gönguleið um Öndverðarnes II meðfram Soginu og Hvítá. Leiðbeiningar um þessa gönguleið verða veittar í Alviðru áður en gangan á fjallið hefst. 

Allir eru hjartanlega velkomnir, en gott væri að fá vísbendingu um fjölda gesta og göngumanna svo við biðjum um þá að senda línu á landvernd@landvernd.is. 

Ingólfsfjall er 551 m hátt móbergsfjall í Ölfusi. Fjallið er bratt á þrjá vegu, í vestur, austur og suður en aflíðandi til norðurs að bænum Litla-Hálsi. Fjallið er „bæjarfjall“ Selfyssinga og þangað sækja þeir neysluvatn sitt.

Ingólfsfjall er nefnt eftir Ingólfi Arnarsyni sem talinn er hafa verið fyrstur til að nema varanlega land á Íslandi. Hafði hann i vetursetu undir Ingólfsfjalli að því  er segir í Landnámu.

Alviðra er friðland og fræðslumiðstöð Landverndar. Öndverðanes II er einnig friðland með merktum gönguleiðum, opið almenningi.

Frekari upplýsingar um Alviðru er að finna hér.

 
Í sumar stendur Alviðra fræðslusetur Landverndar fyrir  öðrum skemmtilegum viðburði sem hentar allri fjölskyldunni: 
 
  • Laugardagur 10. júní – Flóra og fuglar við Sogið. Rannveig Thoroddsen grasafræðingur og Einar Þorleifsson náttúrufræðingur leiða gönguna. 

Þátttaka í sumardagskrá í Alviðru er gjaldfrjáls og öllum opin.

Verið hjartanlega velkomin!

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd