Frambjóðandi til formanns Landverndar er:

Þorgerður María Þorbjarnardóttir heiti ég og er jarðfræðingur að mennt ásamt því að hafa lokið meistaragráðu í leiðtogafræðum til náttúruverndar frá Háskólanum í Cambridge. Ég hef lengi látið mig umhverfismálin varða á vettvangi félagasamtaka en ég var formaður Ungra umhverfissinna starfsárið 2020-2021. Ég hef síðastliðin tvö ár gegnt starfi formanns Landverndar og gef kost á því að halda því áfram næstu tvö árin. 

 

Frambjóðendur í stjórn Landverndar eru:

Anna Þórhildur heiti ég og er úr Norðurárdal í Borgarfirði. Ég hef ástríðu fyrir umhverfismálum og vil leggja mitt af mörkum með fjölbreyttri reynslu minni úr listum, kennslu og miðlun. Ég hef haft píanókennslu að aðalstarfi frá því ég flutti heim úr námi frá Hollandi fyrir þrem árum. Í starfinu hef ég öðlast reynslu af fræðslumálum og því að finna skapandi leiðir til að virkja bestu hliðar nemenda. Meðfram kennslu starfa ég sem sjálfstæður listamaður og er einnig samfélagsmiðlastjóri Sambands íslenskra námsmanna erlendis – SÍNE. Ég vil leggja mitt af mörkum til samfélagsins og nýta skapandi hugsun í miðlun upplýsinga um umhverfismál. Ég stunda útivist og fjallamennsku af krafti og brenn fyrir verndun náttúrunnar gegn óafturkræfum skaða af völdum orkumannvirkja, t.d. vindorkuvera. Ég vil beita mér fyrir verndun líffræðilegs fjölbreytileika og ábyrgð Íslands þar á alþjóðavísu, m.t.t. ábyrgðategunda á borð við heiðlóuna. Náttúra Íslands þarfnast öflugs málsvara, nú meira en nokkru sinni áður. Ég býð mig fram til að liðsinna Landvernd í þeirri baráttu og standa vörð um íslenska náttúru.

Birgir Þórarinsson heiti ég og er lærður tölvunarfræðingur með diloma í hagfræði.  Ég er þó betur þekktur sem tónlistarmaður í hljómsveitinni Gusgus.  Ég fæddist á mölinni og hafði litla náttúruvitund en eftir því sem aldurinn ágerist hefur vitund mín samofist náttúru Íslands á hátt sem erfitt er að útskýra nema hvað ég finn að þetta land á mig.  Ég hef andstyggð á þeirri rányrkju og tilfinningalausu umgengni um landið okkar og náttúru sem sumum finnst mannskeppnan eigi rétt á.  Hugtakið að allt landið þurfi að vera í byggð finnst mér fráleitt.  Ég býð mig fram til stjórnarsetu vegna þess að ég held að þessa nálgun þurfi að rækta með mannskeppnunni eigum við að finna frið og sjálfbæra tilvist á plánetunni sem gaut okkur.

Ég býð mig fram til áframhaldandi setu í stjórn Landverndar. Það hefur verið mjög gefandi að sitja í stjórn samtakanna, ég er þakklátur fyrir samstarfið og það góða fólk sem þar starfar. Þó verkefnin séu stór og mikið sé undir hefur Landvernd náð góðum árangri á undanförnum árum. Náttúra Íslands er einstök og mögnuð og það hvílir á okkur sameiginleg ábyrgð að gæta hennar. Það er óásættanlegt að horfa upp á firði landsins fyllast af firnastórum, eyðileggjandi og mengandi sjókvíum sem ógna lífríki og vistkerfum. Á sama hátt getum við ekki sætt okkur við að víðerni og friðsældar og heiðaland víki fyrir risavöxnum vindtúrbínum sem valda gríðarlegu óafturkræfu raski. Þá má ekki gleyma ásókn í jökulár, vistkerfi hafsins, búsvæði fugla og þann ósjálfbæra ágang sem stefnir líffræðilegum fjölbreytileika í hættu. Svo ekki sé minnst á loftslagsmálin, sem eru í grunninn sama baráttan. 

Þegar þeir sem hafa tekið að sér að vinna fyrir hönd almennings í valdastöðum bregðast skyldu sinni til að tryggja almannahagsmuni – bæði núverandi og komandi kynslóða verður að grípa til aðgerða. Líkt og við varðveitum íslensk fornhandrit sem menningarverðmæti, berum við einnig ábyrgð á náttúruverðmætum sem skipta máli út fyrir landamæri landsins. Þau eru arfur sem við þurfum að skila áfram til framtíðar. Landvernd, umhverfisverndarsamtök Íslands, verður að stíga fram af fullum þunga og verja náttúru Íslands, það í ljósi þess að kjörnir fulltrúar sinna ekki þessu mikilvæga hlutverki – að standa vörð um þessa sameiginlegu hagsmuni gegn ágangi sérhagsmuna

 

Ég býð mig fram í stjórn Landverndar á aðalfundi félagsins þann 23. maí næstkomandi.

Ég hef mikinn metnað fyrir náttúru landsins, vel grónu landi, skógum og heilbrigðum vistkerfum. Í störfum mínum hef ég lagt áherslu á að gæta meðalhófs og að halda á lofti þekkingu sem byggð er á rannsóknum á náttúru landsins.