IUCN

Landvernd er félagi í IUCN, Alþjóðlegu náttúruverndarsamtökunum (International Union for Conservation of Nature). Aðild Landverndar að IUCN var samþykkt í mars 2004. Samtökin eiga áheyrnaraðild að Sameinuðu þjóðunum og Rammasamningi Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar.

IUCN var stofnað árið 1948 og sameinar í dag meira en 1.000 félagasamtök, stofnanir og þjóðríki. Yfir 10.000 sérfræðingar og vísindamenn frá 181 landi tengjast samtökunum í hnattrænu samstarfi sem talið er einstakt.

Markmið IUCN er að hvetja og aðstoða samfélög um allan heim til að vernda heilsteypt og fjölbreytt lífríki og til að tryggja að notkun náttúruauðlinda sé byggð á jafnræði og sé vistfræðileg sjálfbær.

IUCN hefur aðstoðað yfir 75 ríki í að þróa og koma til framkvæmda náttúruverndaráætlunum og stefnumarkandi aðgerðum til að vernda líffræðilega fjölbreytni.

Starfsmenn IUCN eru um 1.000 og flestir þeirra starfa í 75 skrifstofum samtakanna sem staðsettar eru í öllum heimasálfum, en 120 vinna í aðalstöðvunum í Gland í Sviss.

Heimasíða IUCN.

Náttúruvernd er loftslagsvernd

Félagar í Landvernd láta sig náttúruna varða. Vertu með í Landvernd og hafðu áhrif.