Kristján Ingi Einarsson ljósmyndari afhenti Landvernd styrk á Degi íslenskrar náttúru, þann 16. september sl. Kristján Ingi lætur 5% af söluandvirði ljósmyndabókar sinnar, UNIQUE ISLAND, renna til Landverndar. Bókin kom út hjá Bókaátúgáfunni Stillu í maí og hefur verið ein af best seldu landkynningarbókunum í sumar. Við útgáfu bókarinnar var undirritaður samingur um að styrkurinn yrði afhentur Landvernd á Degi íslenskrar náttúru ár hvert.
Styrkurinn kemur sér vel og rennur að þessu sinni til strandhreinsunarverkefnis Landverndar, Hreinsum Ísland, sem var hleypt af stokkunum á Degi umhverfisins í apríl. Verkefnið er árvekniátak og leggur megináherslu á forvarnir og aðgerðir gegn plastmengun í hafi.
Strandhreinsun undir merkjum átaksins Hreinsum Ísland hefur farið fram víða um land í vor og haust. Á Degi íslenskrar náttúru fór t.d. fram umfangsmikil strandhreinsun á Breiðamerkursandi sem skipulögð var af Vatnajökulsþjóðgarði. Landvernd tók virkan þátt í plastlausum september og stóð vaktina í Kringlunni í Reykjavík á Degi íslenskrar náttúru þar sem vakinn var athygli á plastmengun, áhrifum hennar á lífríki, náttúru og heilsu, og bent á leiðir til að draga úr plastnotkun. Það þótti því eiga vel við að nýta fjármagnið til þessa verkefnis.
Á myndinni afhendir Kristján Ingi Guðmundi Inga framkvæmdastjóra Landverndar styrkinn.