Fyrirlestur Sigríðar Sverrisdóttur, kennari við Grenivíkurskóla í Grýtubakkahreppi fjallaði um lýðræðislega þátttöku nemenda innan sveitarfélagsins. Þar hafa nemendur komið á framfæri til sveitastjórnar tillögum að endurbótum í umhverfismálum innan sveitarfélagsins. Vel hefur verið tekið í tillögurnar og er eftirfarandi haft eftir sveitarstjóra Grýtubakkahrepps: „Grænfánaverkefni Grenivíkurskóla á stóran þátt í þeirri miklu vakningu sem orðið hefur í endurvinnslumálum í sveitarfélaginu undanfarin ár því börnin eru besta ‘löggan’ á heimilunum“.