Matvælastefna

Töluleg markmið skortir tilfinnanlega

Stjórn Landverndar telur mikilvægt að stjórnvöld skapi góðar forsendur fyrir matvælaframleiðslu hér á landi til þess að bæta og efla bæði fæðu- og matvælaöryggi, draga úr þörf fyrir innflutningi á matvöru sem og til að styrkja byggð og sjálfbæra nýtingu auðlinda á landi og í hafi. Stjórnvöld og undirstofnanir hafa ekki rækt hlutverk sitt sem eftirlitsaðilar.

Áhersla á samdrátt í losun gróðurhúsalofftegunda

Stjórn Landverndar minnir aftur á að losun gróðurhúsalofttegunda (GHL) frá matvælaframleiðslu á Íslandi er yfir 40% af losun á beinni ábyrgð stjórnvalda  og því verður áherslan í matvælastefnu að vera á aðgerðir sem stuðla að samdrætti í losun en ekki á kolefnishlutleysi og kolefnisjöfnun. Losun GHL er hin raunverulega stóra áskorun og framtíð matvælaframleiðslunnar veltur á þessu atriði sé vel leyst af hendi.

Í stefnuna vantar enn töluleg markmið um samdrátt í losun frá matvælaframleiðslu. Reynslan er ólygnust um það að yfirlýstur góður vilji atvinnulífsins að draga úr losun gróðurhúsaloftegunda nægir ekki.

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd