Misskilningur eða áform um 600.000 tonna álver?

Stöndum vörð um náttúru Íslands Landvernd eru frjáls félagasamtök sem starfa að umhverfismálum til að vernda og bæta lífsgæðin í landinu. Landvernd virðir íslenska náttúru og styður sjálfbæra nýtingu hennar. Taktu afstöðu og vertu með! landvernd.is
Fjölmörg gögn benda til þess að til þess að ná fram stærðarhagkvæmni í rekstri álvera þurfi framleiðslugetan að vera mun meiri en gert er ráð fyrir í áformum við Húsavík og í Helguvík. Ummæli Thorsteins Dale Sjötveit, aðstoðarforstjóra Hydro, fela í sér enn eina vísbendinguna um þetta. Í Speglinum á Rás 2 sagði Thorstein. ...

Misskilningur eða áform um 600.000 tonna álver?

Fjölmörg gögn benda til þess að til þess að ná fram stærðarhagkvæmni í rekstri álvera þurfi framleiðslugetan að vera mun meiri en gert er ráð fyrir í áformum við Húsavík og í Helguvík. Ummæli Thorsteins Dale Sjötveit, aðstoðarforstjóra Hydro, fela í sér enn eina vísbendinguna um þetta. Í Speglinum á Rás 2 þann 16. þ.m. sagði Thorstein.

„Vi jobber nå ut fra et perspektiv om at vi kanskje kan etablere ny smelterkapasitet i perioden 2010 – 2015 for eksempel.“

Á íslensku:
„Við vinnum nú út frá þeim sjónarhóli að við getum kannski komið á fót aukinni framleiðslugetu til dæmis á tímabilinu 2010 – 2015.“

Og í framhaldi af því sagði Thorstein:

„Den smelteren vi nå bygger i Katar er på 600.000 tonn og vi ser nok det som en fornuftig störrelse. Men vi mener også at byggetrinn på 250 – 300.000 tonn kan være gode og effektive smeltere.“

Á íslensku:
„Álverið sem við erum að byggja í Katar núna framleiðir 600.000 tonn og við lítum á það sem skynsamlega stærð. Við erum þó einnig þeirrar skoðunar að byggingaráfangar með framleiðslugetu upp á 250 – 300.000 tonn geti verið góð og skilvirk álver.“

Í framhaldi af fréttaflutningi sem fjölmiðlar byggðu á orðum aðstoðarforstjórans sendi Hydro frá sér yfirlýsingu þar sem m.a. var að finna eftirfarandi:

„Við sjáum í fjölmiðlum er því haldið fram að Hydro stefni að því að reisa álverksmiðju með 600.000 tonna framleiðslugetu á Íslandi. Þennan misskilning má líklega rekja til þeirrar staðreyndar að unnið er að byggingu verksmiðju í þeirri stærð í Katar.“

Gögn um stærðarhagkvæmni álvera.
Skýrsla iðnaðar- og viðskiptaráðherra um framgang verkefna á sviði stóriðju, 122. löggjafaþing.

Svar iðnaðarráðherra við fyrirspurn Hjörleifs Guttormssonar um álbræðslu Norsk Hydro (Hydro Alum inium) á Íslandi., 122. löggjafaþing.

Er sátt í sjónmáli, grein Bergs Sigurðssonar úr Fréttablaðinu 15. nóvember 2006.


Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd