Nú blaktir Grænfáninn við hún á Laugarbakka og Hvammstanga

Nú blaktir Grænfáninn við hún á Laugarbakka og Hvammstanga, nemendum og starfsfólki Grunnskóla Húnaþings vestra eru færðar þakkir fyrir árangurinn. Nemendur eiga sérstaklega heiður skilinn fyrir öflugt framtak þeirra, næmi á nýungar, lausnir og framkvæmd.

Nú blaktir Grænfáninn við hún á Laugarbakka og Hvammstanga, nemendum og starfsfólki Grunnskóla Húnaþings vestra eru færðar þakkir fyrir árangurinn. Nemendur eiga sérstaklega heiður skilinn fyrir öflugt framtak þeirra, næmi á nýungar, lausnir og framkvæmd. Verkefnið hefur vakið athygli vefmiðla eins og Norðanáttar (nordanatt.is) og einnig hefur umhverfisstjóri sett inn pistil á heimasíðu Húnaþings vestra .
Umhverfisnefnd skólans hefur borið hita og þunga af framkvæmd verkefnisins og verður áfram í lykilhlutverki að leiða skólann og samfélagið allt í átt til aukinnar umhverfisvitundar.

Hér að neðan er pistill sem Hafdís Brynja Þorsteinsdóttir setti saman fyrir hönd umhverfisnefndar Grunnskóla Húnaþings vestra og birtist á heimasíðu skólans http://www.skolatorg.is/kerfi/hunathingvestra/skoli/.

6. janúar síðastliðinn var stór dagur í sögu Grunnskóla Húnaþings vestra því að þann dag veittum við viðtöku fyrsta Grænfánanum okkar sem er alþjóðleg viðurkenning á verkefni sem að Landvernd stendur fyrir.
Upphaf þátttöku okkar í verkefninu má rekja til þess að fyrrverandi skólastjóri okkar Ágúst Jakobsson boðaði þrjá kennara á fund þann 12. mars 2007 og sagði þeim frá áhuga sínum á Grænfánaverkefninu.
Skólastjóraskipti urðu við skólann og haustið 2008 tók nýr skólastjóri Sigurður Þór Ágústsson til starfa. Á vorönn 2009 kallar hann kennarana þrjá sem áður höfðu farið yfir gátlistana saman og tilkynnir þeim að verkefnið verði aftur sett í gang. Í framhaldinu ákveða kennararnir að fara og heimsækja 2 skóla sem voru búnir að fá Grænfánann og skoða aðstæður þar.
Verkefnið fór nú kannski hægt af stað en það var nú það sem að okkur hafði verið ráðlagt að gera.
Fyrstu skrefin voru að spara og flokka pappír og spara rafmagn og vatn
Árangurinn lét ekki á sér standa. Rafmagnsreikningar lækkuðu svo eftir var tekið og ekki var lengur þörf á einum ruslagám við skólann.
Síðastliðinn vetur var svo settur fullur kraftur í verkefnið. Fundað var í bekkjum og með fulltrúum nemenda og hugmyndir krakkanna voru notaðar á vordögunum sem voru að miklum hluta helgaðir Grænfána.
Einnig tekur skólinn þátt í hjálparstarfi A B C barnaþorpanna.
Meðal þess sem við tókum okkur fyrir hendur á vordögum var að hreinsa frá trjám, setja niður kartöflur bæði á Laugarbakka og Hvammstanga, fara í heimsókn í Hirðu, gera upp Hænsnahöllina, unga út hænueggjum, endurvinna pappír, og halda orkudag.
Hugmyndin með Orkudaginn vakti mikla hrifningu hjá Orra Páli Jóhannssyni starfsmanni Landverndar. Fannst honum mjög skemmtilegt að sumir nemendur og starfsfólk skuli hafa gengið, hjólað og farið á hestum til sinna starfa og að aðrir íbúar sveitarfélagsins hafi verið hvattir til þess sama.
Orri Páll mætti sjálfur og afhenti okkur fánann. Hann hafði líka komið þann 14. desember síðastliðinn til að taka út hvort skólinn væri tilbúinn til að fá þessa viðurkenningu Hann hefur sannarlega verið okkur ákaflega hjálplegur á þessum fyrstu skrefum verkefnisins.
Fánar voru afhentir bæði á Laugarbakka og Hvammstanga. Orri Páll flutti tölu á báðum stöðum og einnig Rakel Ósk Ólafsdóttir og Jón Freyr Gíslason nemendur í 10. bekk sem bæði eru fulltrúar í umhverfisnefnd skólans.
Núna eru næstu skrefin að kalla saman umhverfisnefndina aftur og setja okkur ný markmið fyrir þetta nýbyrjaða ár því ekki ætlum við að láta deigan síga þar sem fáninn okkar blaktir við hún og hvetur okkur til frekari góðra verka.
Eins og krakkarnir sögðu: Áfram við!

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd