Skólar á grænni grein 20 ára á Íslandi. Fjölbreytt afmælisdagskrá 2021-2022

Teiknaður refur heldur á grænum fána. Á myndinni stendur, skólar á grænni grein, grænfáninn er 20 ára í ár.
Skólar á grænni grein fagna 20 ára afmæli á Íslandi. 20 ár eru frá því að fyrsti grænfáninn var afhentur á landinu og því ber að fagna með fjölbreyttri afmælisdagskrá skólaárið 2021-2022.

Skólar á grænni grein fagna 20 ára afmæli á Íslandi árið 2021 og árið 2022 eru 20 ár frá því að fyrsti grænfáninn var afhentur á landinu. Við fögnum þessum tímamótum með fjölbreyttri afmælisdagskrá skólaárið 2021-2022.

Afmælisdagskrá skólaárið 2021-2022

Af hverju að fagna einu sinni þegar þú getur fagnað oft? Á afmælisári Skóla á grænni grein fær hver mánuður sitt þema og hvetjum við skóla til að taka með einhverjum hætti þátt í dagskránni.

Mánaðarlega munum við senda frá okkur litla fræðsluafmælispakka sem innihalda m.a. stutta fræðslu um þema mánaðarins. Nánari upplýsingar koma á vef  grænfánans þegar nær dregur.

Sameiginlegur hátíðardagur 25. apríl 2022

Takið frá daginn 25. apríl 2022! Þá höldum við sameiginlegan grænfána hátíðardag – á Degi umhverfisins.

#grænfáninn20ára

 

Þema hvers mánaðar

September: Plast

Október: Loftslagsbreytingar og valdefling

Nóvember: Orka og vistspor/kolefnisspor

Desember: Neysla og hringrásarhagkerfið

Janúar: Matur og grænkerar

Febrúar: Grenndarnám og átthagar

Mars: Fataneysla og fatasóun

Apríl: Hnattrænt jafnrétti, lífsgæði og forréttindi

Sameiginleg afmælishátíð allra grænfánaskóla 25. apríl.
Maí: Lífbreytileiki
Júní: Vistheimt

Við viljum vekja athygli á því góða starfi sem unnið er í skólum landsins. Vilt þú segja frá því hvernig skólinn þinn hefur unnið að ákveðnu þema?

Skólar á grænni grein (Eco-schools) er alþjóðlegt menntaverkefni sem rekið er af Landvernd á Íslandi frá árinu 2001. Grænfáninn er alþjóðleg viðurkenning fyrir innleiðingu menntunar til sjálfbærni í skólastarfið og má finna skóla á grænni grein í 68 löndum í heiminum.

Verkefnið er stærsta sjálfbærni og umhverfismenntaverkefni í heimi og er haldið úti af samtökunum Foundation for Environmental Education.

Árið 2001 skráðu fyrstu skólarnir skráð sig í verkefnið en það voru Andakílsskóli á HvanneyriFossvogsskóli og Selaásskóli. Stuttu síðar hófu leikskólar þátttöku og tók leikskólinn Norðurberg í Hafnarfirði af skarið. Í dag eru 200 skólar af öllum skólastigum víðsvegar um landið þátttakendur í verkefninu.

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd