Sumardagskrá í Alviðru: Flóra og fuglar við Sogið 10. júní 2023

Langar þig að skoða og vita meira um villtar jurtir og fugla? Spennandi fræðsluganga frá Alviðru laugardaginn 10. júní 2023 kl. 14:00-16:00.
Í júní eru dagarnir langir og náttúran skartar sínu fegursta.
 
Laugardaginn 10. júní 2023 kl. 14:00 -16:00 munu náttúrufræðingarnir  Rannveig Thoroddsen og Einar Þorleifsson  leiða létta og skemmtilega fræðslugöngu um Þrastarskóg. Litið verður eftir foldarskarti í skógarbotni og lagt við hlustir eftir fuglasöng á grein eða kvaki á Soginu.
 
Gangan er létt og hentar allri fjölskyldunni. Hún hefst við Alviðru og að lokinni göngu er boðið upp á kaffi/kakó og kleinur í Alviðru.  Alviðra er í Ölfusi, undir Ingólfsfjalli: Sjá á korti 
 
Í sumar stendur Alviðra fræðslusetur Landverndar fyrir öðrum skemmtilegum viðburði:
 
  • Laugardagur 24. júní –  Jónsmessuganga. Gengið á Ingólfsfjall frá Aviðru; leiðsögumaður Tryggvi Felixson

Þátttaka í sumardagskrá í Alviðru er gjaldfrjáls og öllum opin.

Verið hjartanlega velkomin!

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd