Verndarsvæðið Leiruvogur og nærsvæði, þar með talin sundin blá, mynda órjúfanlega heild sem fyrirhuguð Sundabraut mun hafa veruleg áhrif á. Innan áhrifasvæðis framkvæmdarinnar eru mikilvæg og fjölbreytt verndarsvæði og friðland. Sundabraut mun jafnframt hafa mikil áhrif á ásýnd svæðisins, ef af verður. Landvernd sendi Skipulagsstofnun umsögn um matsáætlun vegna fyrirhugaðrar Sundabrautar.
Röskun svæðis – loftslagsmál og vistkerfi
Við framkvæmdir af þessari stærðargráðu þarf að vera ljóst hvernig framkvæmdin stuðlar að því að uppfylla markmið hvað varðar loftslag og vistkerfi, sem Ísland hefur gert skuldbindandi samkomulag um á alþjóðavísu. Landvernd metur að ávinningur Sundabrautar geti ekki verið í anda sjálfbærrar þróunar í ljósi þeirra gríðarlegu áskorana sem meðal annars áhrif aukinnar umferðar og framkvæmda með Sundabraut munu að óbreyttu hafa.
Verndarsvæði
Sundabraut kemur til með að liggja í nálægð við friðlýst svæði og þar verður að gera kröfur um ítarlegar og víðtækari rannsóknir en áformaðar eru skv. í matsáætlun.
Hátt verndargildi
Verndargildi svæðisins er mjög hátt – grunnsævi og víðáttumiklar leirur. Leirurnar eru meðal fárra óraskaðra leira á höfuðborgarsvæðinu, enda hefur mjög verið þrengt að slíkum svæðum á við höfuðborgarsvæðið. Leirur hafa mikilvægt lífríki að geyma sem hefur svo einnig áhrif á annað lífríki m.a. vegna fæðu far- og staðfugla sem sækja á svæðið. Þá gegna leirur einnig mikilvægu hlutverki við að takmarka gróðurhúsaáhrif og önnur neikvæð áhrif loftslagsbreytinga. Leirur binda gróðurhúsalofttegundir og binding á flatareiningu er mikil. Því leggur Landvernd áherslu á rannsóknir á þeim.
Fuglalíf á svæðinu er einstakt, enda er þar alþjóðlegt fuglarverndarsvæði IBA
Villtir fiskistofnar
Blikastaðakró sem liggur frá svokölluðu veiðisvæði Korpu og Úlfarsá og vatnasvið hennar eru svæði sem eru á náttúruminjaskrá allt upp að helsta upptökusvæðs árinnar sem er Hafravatn. Í Korpu, þeim hluta árinnar sem liggur að sjó sem er hluti Úlfarsár, er eins og vatnasviðið allt dýrmæt stangveiðiá. Auk þess ganga villtir stofnar í ána.
Ef af framkvæmdum verður yrði að gera ríkar kröfur um að sett verði upp áætlun um sérstaka vöktun á öllu vatnasviði vatnsfalla sem liggja innan þeirra marka sem eru skilgreind á náttúruminjaskrá. Jafnframt yrði tilgreint hvernig gripið yrði til mótvægisaðgerða ef neikvæðar afleiðingar kæmu fram.