Grænfáninn: Nemendur nota gátlista og skoða hvernig skólinn stendur sig í því þema sem unnið er að. Út frá gátlistunum eru svo sett markmið.
Umhverfisgátlistar Skóla á grænni grein gefa nemendum tækifæri til að meta stöðu umhverfismála í skólanum út frá því þema sem skólinn hyggst vinna að á tímabilinu.
Mælt er með því að meta stöðu umhverfismála í upphafi grænfánatímabils, um miðbik þess og svo í lokin til að greina hver árangurinn var af vinnunni.
Nemendur sjá um umhverfismatið
Með því að láta nemendur meta stöðu umhverfismála, vakna spurningar og hefur þessi vinna mikið fræðslugildi.
Umhverfismat til að búa til ný markmið
Skólar á grænni grein leggja mikið upp úr því að vægi nemenda við gerð markmiða sé mikið. Það er því tilvalið að nemendur skoði niðurstöður umhverfismats og setji markmið um að bæta það sem upp á vantar.
Umhverfismat til að velja þema
Starfsfólk, umhverfisnefnd eða nemendur geta fyllt út gátlista fyrir fleiri en eitt þema til að sjá hvernig staðið er að málum innan skólans. Þessi vinna ætti að auðvelda nemendum og kennurum að ákveða hvaða þema skuli taka fyrir og hvaða markmið séu brýnust og mest aðkallandi út frá niðurstöðum matsins.
Gátlistunum má breyta eftir þörfum
Gátlistarnir eru í word-skjölum og því hægt að taka út, og bæta við eftir því sem hentar hverjum skóla. Listarnir eru ekki tæmandi og er það í sjálfsvald sett hvort að gátlistinn sé notaður í heild sinni, að hluta eða að notaðar séu aðrar spurningar/mælingar en koma fyrir á gátlistanum