alexander-hafemann-578204-unsplash

Umsögn um aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum

Umsögn Landverndar um aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum

Stjórn Landverndar hefur kynnt sér áætlun ríkisstjórnarinnar um aðgerðir í loftslagsmálum.

Um leið og stjórnin fagnar því að slík áætlun hefur verið sett fram ásamt fjármögnun til málaflokksins, þá harmar hún hve lítill hluti ríkisútgjalda er áætlaður í þetta alvarlegasta málefni sem mannkynið stendur frammi fyrir um þessar mundir.

Ljóst er að setja verður skýr, mælanleg markmið og fjármagn þarf að fylgja til þess að láta þau nást, ef ríkisstjórnin ætlar að takast á við loftslagsbreytingar af fullri alvöru.

Landvernd vonast til þess að við næstu uppfærslu verði silkihanskarnir teknir af og ráðist verði í þær kerfisbreytingar sem nauðsynlegar eru til þess að ná árangri hratt í loftslagsmálum.

Lesa umsögn Landverndar

Sorry, we couldn't find any posts. Please try a different search.

Sorry, we couldn't find any posts. Please try a different search.

Svona hefur Landvernd áhrif

Landvernd hefur áhrif á stefnumótun og ákvarðanatöku í umhverfismálum með því að skrifa umsagnir, álykta um málefni tengd umhverfisvernd og náttúruvernd. Landvernd krefst þess að farið sé að lögum og hefur látið reyna á nokkur mál fyrir dómi.

Náttúruvernd er loftslagsvernd

Félagar í Landvernd láta sig náttúruna varða. Vertu með í Landvernd og hafðu áhrif.