Landvernd mótmælir harðlega umsókn Landsnets um framkvæmdaleyfi vegna Suðurnesjalínu 2 meðan kærumál vegna fyrirhugaðrar framkvæmdar standa yfir og eignarnámsmál eru óútkljáð. Landvernd hvetur sveitarfélögin til að fresta afgreiðslu málsins þar til niðurstaða kærumála liggur fyrir.
Suðurnesjalína 2 er 220 kílóvolta (kV) háspennulínu frá Hamranesi í Hafnarfirði að Rauðamel norðan Svartsengis, en Landsnet sendi umsókn sína um framkvæmdaleyfi í dag til sveitarfélaganna Grindavíkur, Hafnarfjarðar, Reykjanesbæjar og Voga. Í desember sl. gaf Orkustofnun Landsneti leyfi til að reisa og reka línuna.
Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands og Landvernd kærðu þessa ákvörðun Orkustofnunar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála hinn 5. janúar 2014, þar sem þess var krafist að ákvörðunin yrði felld úr gildi (sjá viðhengi). Einnig var þess krafist að Orkustofnun yrði gert að meta flutningsþörf fyrir raforku á umræddri línuleið og krefja framkvæmdaraðila um að líta til fleiri valkosta við kerfisútfærslu línunnar, þ.m.t. til jarðstrengja. Samtökin töldu ekki nægilega vel rökstutt hvers vegna þyrfti raflínu með svo mikilli flutningsgetu (220kV). Ekki hefur verið kveðinn upp úrskurður í málinu.
Í frétt á vefsíðu Landsnets kemur fram að stefnt sé að því að framkvæmdir hefjist um mitt þetta ár og þeim ljúki í árslok 2015. Jafnframt fer fyrirtækið fram á að sveitarfélögin fjögur veiti umbeðið framkvæmdaleyfi við fyrsta tækifæri þar sem nauðsynlegt sé að hefja framkvæmdina sem fyrst þar sem þörfin á Suðurnesjalínu 2 sé aðkallandi. Þetta er fjarri lagi, enda er fyrirhugað að reka línuna fyrst um sinn á lægri spennu, eða 132kV. Fyrirhuguð 220kV háspennulínu er því óþörf við núverandi aðstæður.
Sjá einnig:
Gagnrýna eignarnámsleyfi iðnaðarráðherra.
Jarðstrengir raunhæfur valkostur til flutnings raforku.