Sigurvegarar 2020 – Ungt umhverfisfréttafólk

Sigurvegarar
Fjölmargir nemendur sendu inn verkefni í keppnina Ungt umhverfisfréttafólk. Sigurvegarar 2020 eru...

Ungu fólki bauðst í vetur að taka þátt í samkeppni á vegum Landverndar um bestu umhverfisfréttirnar. Verkefnið Ungt umhverfisfréttafólk er nýtt af nálinni hjá Landvernd og er unnið í nánu samstarfi við 10 framhaldsskóla á landinu. Eftir farsælt prufuár í verkefninu er komið að uppskeru. Hér má sjá sigurverkefnin og umsagnir dómnefndar.

Dómnefndir
Dómnefndina skipuðu Snærós Sindradóttir, fjölmiðlakona, Benedikt Erlingsson, leikari og leikstjóri og Ragnhildur Þrastardóttir, blaðamaður.

Auk dómnefndar veita Ungir umhverfissinnar, Samband íslenskra framhaldsskólanema og Landssamtök íslenskra stúdenta verðlaun fyrir flokkinn Val unga fólksins.

Vegleg verðlaun voru í boði fyrir vinningsverkefnin. Meðal verðlauna voru rafskúta, peningaverðlaun og gjafakort. 

Í FYRSTA SÆTI

Heimildarmyndin
Mengun með miðlum

Tækniskólinn, Axel Bjarkar Sigurjónsson 16 ára, Hálfdán Helgi Matthíasson 16 ára og Sölvi Bjartur Ingólfsson 16 ára. 

Umsögn dómnefndar
Verkefnið fellur algjörlega að titli keppninnar, ungt umhverfisfréttafólk, þar sem aðstandendur verkefnisins fjölluðu á fræðandi hátt, að heiðarleika og sanngirni um afkima umhverfisvandans og þessa knýjandi kröfu á að samfélagsmiðlar verði knúnir áfram af grænni orku. Það er augljóst að aðstandendur verkefnisins lögðu mikið í að búa til heildstæðan fréttaskýringarþátt á þessa hlið umhverfismála sem fáir þekkja.

Í ÖÐRU SÆTI

Ljósmyndin
Congratulations, humanity!

Congratulations humanity! Verðlaunamynd Ásdísar Rósar Þórisdóttur sem hlaut annað sætið í verðlaunakeppninni Ungt umhverfisfréttafólk 2020

Fjölbrautaskólinn við Ármúla, Ásdís Rós Þórisdóttir, 22 ára.

Umsögn dómnefndar
Myndin segir meira en þúsund orð og hittir okkur neytendur fyrir, sem eru fastir í viðjum umbúðarsamfélagsins. Myndin er líka sterk gagnrýni á stórfyrirtæki og hvernig þau standa fyrir umhverfisskaðandi iðnaði um allan heim. Listaverk sem að fær fólk sannarlega til að hugsa.

Ljósmyndin sigraði einnig í flokkinum
Val unga fólksins

Í ÞRIÐJA SÆTI

Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu, Ástrós Aníta Óskarsdóttir 19 ára, Harpa Sigríður Óskarsdóttir 21 árs, Mateja Nikoletic 16 ára og Selma Mujkic 18 ára

Umsögn dómnefndar
Bráðnun jökla ógnar ungum kynslóðum í dag og stefnir heimkynnum okkar og lífsháttum í hættu. Hópurinn setti verkefnið fram á mjög aðgengilegan hátt fyrir ungt fólk sem var til fyrirmyndar og var í senn fræðandi og lifandi.

 

Ungt umhverfisfréttafólk komið til að vera

Um leið og við óskum öllum vinningshöfum til hamingju með vel unnin verkefni þá þakkar Landvernd öllum þátttakendum fyrir frábær verkefni en alls bárust um 40 verkefni í keppnina frá 10 framhaldsskólum víða um land. 

Landvernd hefur umsjón með verkefninu Ungt umhverfisfréttafólk. Þegar fram líða stundir er stefnt á að bjóða framhaldsskólum, efri bekkjum grunnskóla nemendum á háskólastigi að taka þátt. Framhaldsskólar geta enn skráð sig til leiks fyrir næstu önn. Skráning.

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd