Tillögur um afnám veiðibanns í griðlandi Snæfells er áfellisdómur yfir stjórn og svæðisráði austurs í Vatnajökulsþjóðgarði. Hér í tillögum er um mikla afturför að ræða og óskiljanlegt að slík áform séu lögð fram af þeim sem hefur verið falið að gæta þjóðgarðsins þar sem hafa skal grundvallarviðmið náttúruverndar að leiðarljósi.
Landvernd gerir alvarlegar athugasemdir við meðferð málsins af hálfu svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs og telur að ekki hafi verið fjallað um það með góða stjórnsýsluhætti að leiðarljósi.
Náttúrufræðistofnun Íslands áréttar í umsögn “ástæða er að viðhalda griðlandi við Snæfell og á Eyjabökkum, stofnunin telur fulla ástæðu til að setja sérreglur um svæði sem er skilgreint Ramsar-svæði miðað við markmið og kröfur samningsins“
Ramsarsvæði Snæfells- og Eyjabakka
Landvernd tekur heilshugar undir með þeim sérfræðingum og stofnunum sem hafna þeim tillögum sem liggja til grundvallar þeim breytingum sem kynntar hafa verið. Eitt af því mikilvægasta sem griðlandið viðSnæfell og Eyjabakka hefur að geyma er alþjóðlega mikilvægt svæði þ.e. samþykkt Ramsarsvæði (2013
Til áréttingar á vef Umhverfisstofnunar https://ust.is/nattura/natturuverndarsvaedi/ramsarsvaedi/snaefells-og-eyjabakkasvaedid/ Þar segir m.a. „Svæðin eru auk þess á náttúruminjaskrá og eru skilgreind sem mikilvæg beitilönd heiðagæsa og hreindýra auk þess sem óvenju grösug votlendissvæði með fjölda tjarnaer að finna innan þessa einstaka verndar- og griðasvæðis á sem er talið eitt hið umfangsmesta og um leiðfjölbreyttasta votlendissvæði á hálendi Íslands. Á svæðinu hafa sést yfir 30 tegunda fugla og af þeim verpur 21 tegund. Svæðið er að mati sérfræðinga metið mjög mikilvægt fellisvæði heiðagæsa en það styðja rannsóknir síðan 1979, auk þess verpur heiðagæsin innan svæðisins. Þá hefur sérstaða Ramsarsvæðisins- griðlandsins mikinn fjölda ólíkra jurta að geyma en þar hafa verið greindar samtals 319 tegundir plantna.“
Að mati Landverndar ætti vart að þurfa að skýra út fyrir staðkunnugu svæðisráði að skotveiðar og ferðamennska á sama svæði á sama tíma fara illa saman. Hætt er við með tillögum þessum að upplifun gesta og gangandi um lítt snortin víðerni þar sem veiði er stunduð á villtum dýrum geti haft ófyrirséðar afleiðingar fyrir ímynd og orðspor þjóðgarðsins. Slíka tilraunastarfsemi ætti svæðisráð ekki að stunda, heldur miklu fremur að hafa varúðarregluna að leiðarljósi þar sem náttúran sé látin njóta vafans.
Nýlegar umsagnir
Umsögn Landverndar um fimm virkjanakosti rammáætlunar
3. áfangi rammaáætlunar
Reglugerð um fiskeldi – í ljósi reynslunnar þarf að stórherða kröfur
Umsögn Landverndar um fimm virkjanakosti rammáætlunar
3. áfangi rammaáætlunar
Reglugerð um fiskeldi – í ljósi reynslunnar þarf að stórherða kröfur
Óbyggðanefnd – breytingar á lögum
Svona hefur Landvernd áhrif
Landvernd hefur áhrif á stefnumótun og ákvarðanatöku í umhverfismálum með því að skrifa umsagnir, álykta um málefni tengd umhverfisvernd og náttúruvernd. Landvernd krefst þess að farið sé að lögum og hefur látið reyna á nokkur mál fyrir dómi.
Náttúruvernd er loftslagsvernd
Félagar í Landvernd láta sig náttúruna varða. Vertu með í Landvernd og hafðu áhrif.