Félagakvöld: Gagnvirk vinnustofa um aðgerðir í loftslagsmálum
Fjarfundur á ZoomMánudaginn 7. október er félögum Landverndar boðið á fjarfund, þar þau Aðalsteinn Leifsson og Ágústa Þóra Jónsdóttir leiða gagnvirka vinnustofu um loftslagsaðgerðir.
Mánudaginn 7. október er félögum Landverndar boðið á fjarfund, þar þau Aðalsteinn Leifsson og Ágústa Þóra Jónsdóttir leiða gagnvirka vinnustofu um loftslagsaðgerðir.
Kjósum nægjusemi er fræðslustund á vegum Landverndar og Neytendasamtakanna. Komdu og lærðu um nægjusemi og neysluhyggju!
Kynslóð eftir kynslóð er spjall um nægjusemi milli ólíkra kynslóða. Leggja kynslóðirnar ólíkan skilning í þetta hugtak? Hver er staða nægjusemi í dag? Komdu og kynntu þér málið!
Umhverfis- og loftslagsmál eru mikilvægustu málefni samtímans. Þrátt fyrir það virðist djúpt á þessum málum í stefnum flokkanna, fyrir komandi kosningar. Landvernd og fjölmörg náttúruverndarsamtök bjóða forystu flokkanna í pallborð til þess að ræða málin.
Þuríður Helga Kristjánsdóttir, núvitundarkennari, fjallar um tengslin á milli nægjusemi og núvitundar. Auk þess kennir hún okkur æfingar sem styrkja gildi eins og t.d. þakklæti og samkennd. Viðburðurinn er á fjarfundarformi.
Kæru náttúruverndarar nær og fjær. Við endutökum leikinn frá í fyrra og boðum til samráðs meðlima og aðildarfélaga Landverndar. Viðburðurinn fer fram á netinu milli 20:00 og 21:30 - 23.01.25. […]
Félagsfundur Landverndar. Áfram verður unnið að stefnumótun Landverndar, mánudaginn 24. febrúar, klukkan 17:00 - 18:00. Valfrjálst er hvort mætt sé á fundinn í Guðrúnartún 1 eða á Zoom. Hér er […]
Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands og Landvernd bjóða í fræðslugöngu um Ögmundarhraun þar sem við fræðumst um hnignun lands og landgræðslu. Hver er staða minjaverndar vegna landeyðingar og eldgosa? Mæting er klukkan 17:00 […]
Aðalfundur félagsins verður haldinn 23. maí næstkomandi. Við hvetjum alla félaga til að taka daginn frá. Stjórn Landverndar óskar eftir framboðum í stjórn en ár hvert er kosið í 5 […]
Vinir Alviðru, stjórn og starfsmenn Landverndar – og aðrir velunnarrar. Stjórn Alviðru boðar til fundar að Alviðru laugardaginn 4. október til að fá fram sjónarmið og hugmyndir um hvert á […]