Dagsferð að Dynk – Þjórsárferð Landverndar
Arnes Árnes, IcelandGönguleiðin er 15 km löng og laus við stíga og stikur í hæðóttu landi og er gangan ætluð vönu þúfnagöngufólki. Áætlað er að koma að Skarðshömrum síðdegis.
Gönguleiðin er 15 km löng og laus við stíga og stikur í hæðóttu landi og er gangan ætluð vönu þúfnagöngufólki. Áætlað er að koma að Skarðshömrum síðdegis.
Viðburður í tilefni Guls september. Finnið þið fyrir vanmáttarkennd eða kvíða þegar þið hugsið um loftslagsmálin? Þið eruð ekki ein. Við lifum sannarlega á óvissutímum en með opinni umræðu og aukinni meðvitund getum við skapað rými fyrir von, aðgerðir og innri styrk. Mánudaginn 29. september bjóðum við ykkur á viðburð þar sem við getum deilt […]
Heiðar í Háska- Garpsdalur 3.-4. Október Nú leggjum við af stað í enn eina göngu um heiðar í háska. Núna verður hellings krem á kökunni þar sem við bjóðum áhugasömum gestum að gera þetta að tveggja daga fjöri. Í þetta sinn liggur leið okkar að Garpsdal þar sem gríðarlegar virkjanaframkvæmdir eru á teikniborðinu. Valkvætt er […]
Vinir Alviðru, stjórn og starfsmenn Landverndar – og aðrir velunnarrar. Stjórn Alviðru boðar til fundar að Alviðru laugardaginn 4. október til að fá fram sjónarmið og hugmyndir um hvert á að stefna. Góðan dag Við opnum húsið með því að bjóða upp á hádegissúpu kl. 12:00. Í kjölfarið verður fundur með eftirfarandi dagskrá: 13:00 Staðan, […]
Endilega fylgist með streyminu hér. Nú hafa hagsmunasamtök, náttúruverndarsinnar, rannsakendur og fagaðilar rammaáætlunar lýst yfir áhyggjum tengdum því að ítrekað hefur verið farið gegn ráðleggingum Rammaáætlunar. Þá skjóta upp kollinum spurningar á við: Er rammaáætlun að þjóna tilgangi sínum? Eru niðurstöðurnar svona auðhunsaðar? Hvað þarf að bæta? Í náttúru Íslands er margs konar auð að […]
Bóndinn og verksmiðjan. Sýnd í Bíó Paradís klukkan 17, 18. október, 2025 Bóndinn og verksmiðjan er átakanleg saga af baráttu einstaklings gegn stórfyrirtæki og afskiptaleysi yfirvalda. Með áhorfendaverðlaununum á Skjaldborg fær sagan þann hljómgrunn sem hún á skilið – sem persónuleg frásögn, umhverfisádeila og áminningu um ábyrgð stjórnvalda að þeim beri að tryggja að stóriðjan […]
Aflýst vegna Veðurs Hvatningarátak Landverndar og Grænfánans Nægjusamur nóvember vekur athygli á jákvæðum áhrifum nægjusemi á náttúru, samfélag og eigið líf. Nægjusamur einstaklingur finnur að styrkur og hamingja kemur innan frá en ekki frá hlutum. Nægjusemi er eftirsóknarverð og stuðlar að frelsi, meiri tíma og orku, þakklæti, hamingju og tilfinningu um að eiga nóg. […]
Þann 2. nóvember næstkomandi stendur Landvernd fyrir loftslagsvinnustofum þar sem línurnar eru lagðar fyrir COP30 sem verður í Brasilíu 10-21 nóvember. Þorgerður María, formaður Landverndar og Laura Sólveig, forseti Ungra umhverfissinna munu sækja ráðstefnuna. Við bjóðum félögum náttúru og umhverfisverndarsamtaka að mæta á vinnustofur til þess að útbúa veganesti fyrir fulltrúana á COP. Vinnustofurnar verða […]
Fyrir hvern er hagvöxturinn og á kostnað hvers? Hvað er raunverulegur kostnaður mannkyns og plánetunnar fyrir endalausan gróða hagkerfisins? Hvað ef loftslagsváin er í raun og veru vegna misnotkunar til gróða, misréttis og valda? Hvernig myndi samfélag byggt á réttlæti, jafnrétti og velferð umfram gróða líta út? Þetta og margt fleira kemur fram í nýrri […]
Komdu á Fund Fólksins sem haldinn verður í Hörpu fimmtudaginn 13 nóvember. Leiðarljós Fundar fólksins er að efla lýðræði og samfélagsþátttöku með því að efna til samtals milli frjálsra félagasamtaka, stjórnmálafólks og almennings. Þetta er stærsti viðburður ársins sem Almannaheill - Samtök þriðja geirans standa fyrir Vegleg dagskrá er í Kaldalóni kl.14-18. Landvernd verður með […]
Notað verður nýtt á jólahringrásarmarkaði Norræna hússins, Landverndar og Grænfánans! Viðburðurinn er hluti af aðventudagskrá Norræna hússins og hvatningarátaki Landverndar og Grænfánans um Nægjusaman Nóvember. Dagskrá:13:00-17:00 – Jólahringrásarmarkaður opinn og Textíl Barinn verður á staðnum!14:00-17.00 – Jólapeysusmiðja með Ýrúrarí Jólahringrásarmarkaður: Það sem nýtist þér ekki lengur gæti vel reynst fjársjóður annars – og öfugt! Komdu […]
Við Íslendingar erum svo heppin með alla þá frábæru rithöfunda sem við eigum og þér er boðið á bókaupplestur af bestu gerð!!! Við fáum náttúruvininn og stórskáldið Andra Snæ Magnason til þess að ræða við okkur. Hann hefur lengi talað opinberlega um umhverfismál af hreinustu snilld og gaf nýverið út nýju bókina "Jötunsteinn". Einnig fáum […]