Loading Viðburðir

« Allir Viðburðir

Fuglaskoðun í Flóa

27 júní @ 12:00 - 14:00

Hlynur Steinsson og Íslenski bærinn í Flóa bjóða félögum Landverndar í skemmtilega fuglaskoðun sem hentar öllum aldurshópum. Byrjað verður á fræðslustund í sýningarskálanum og svo verður haldið út og leitað að fuglum. Gott getur verið að taka með sér sjónauka til að sjá fuglana betur. Viðburðurinn stendur yfir í um tvo tíma en sjálfsagt er að doka lengur við og skoða Íslenska bæinn.

Hlynur Steinsson er líffræðingur að mennt og hefur getið af sér gott orð í miðlun sinni um fugla, meðal annars með þáttunum Fuglafit sem finna má hjá Rúv.

Íslenski bærinn fóstraði þjóðina í aldanna rás og var um leið vagga innlendrar menningar,
allt í senn  fallegur, frumlegur og fínlegur  í sinni náttúrulegu mýkt. Menningarsetrið Íslenski bærinn er húsaþorp, sýningarstaður, samkomustaður og leikvöllur sem hverfist um íslenska torfbæinn og græna byggingalist. Þar munu gestir upplifa einstakan staðaranda, jafnframt því að skoða sýningar sem útskýra samhengi, þróun og tilbrigði íslenskra torfbæja með það að leiðarljósi að túlka aldagamlan og einstakan arf inn í samtímann með samþættingu, fræðimennsku, listrænni nálgun og varðveislu verkmenningar.

Nánar

  • Dagsetning: 27 júní
  • Tímasetning:
    12:00 - 14:00