Seltún og Sogin í Trölladyngju

Löng og skemmtileg ganga fyrir alla fjallagarpa.
Lengd göngu: 12.5 km
Hækkun: 750 m alls
Tími: 5 klst
Upphafsstaður: Bílastæði Seltúni https://maps.app.goo.gl/RkaihV9bC8Zpit8N8
Leiðarlýsing: Gengið frá bílastæði við Seltún um Ketilstíg yfir Sveifluháls, hjá Arnarvatni, þar til komið er í Móhálsadal á milli hálsa. Þaðan er gengið í norður yfir dalinn þverann, hjá Djúpavatni sunnan í Núpshlíðarhálsi, og í Soginn við Trölladyngju. Þá er gengið eftir hálsinum, hvaðan útsýni eða æði gott, í suðvestur átt og gengið niður í Vigdísarvelli. Loks er snúið í átt að Sveifluhálsi aftur, um fáfarin hverasvæði, og í Seltún að nýju.
Gangan er liður í röð gönguferða í Reykjanesfólkvang sem Landvernd og Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands standa fyrir. Tilefnið er 50 ára afmæli fólkvangsins og vekja athygli á tilgangi hans og þeim útivistarkostum sem fólkvangurinn geymir. Jafnframt að kynna þetta fjölbreytta og t.t. lítt raskaða svæði suður af Kleifarvatni – heillega landslagsheild, sérstæðar jarðminjar, búsetusögu allt frá landnámi og greinilegar menningarminjar – steinsnar frá höfuðborgarsvæðinu.
Komið með kvöldmatinn í nesti, góð útiföt og góða skapið.
Skráið ykkur endilega hér að neðan.