Listaverka uppboð Ása kisu
10 júní @ 17:00 - 19:00

Sérstakt listaverkauppboð verður haldið í Gallerí Fold miðvikudaginn 10. júní þar sem einstakir skúlptúrar úr plasti verða boðnir upp. Verkin eru unnin úr plasti sem kötturinn Ási hefur safnað saman úr náttúrunni og umbreytt í áhrifarík listaverk í samstarfi við eiganda sinn Sigríði Júlíu.
Listamennirnir gefa verkin til styrktar Landvernd og mæta þau á viðburðinn til þess að taka á móti tilnefningu Ása sem heiðursfélagi Landverndar.
Á uppboðinu gefst gestum tækifæri til að eignast eitt af hinun stórskemmtilegu plasttröllum sem sameina list, húmor og umhverfisvitund á einstakan hátt. Tröllin eru einstök og í takmörkuðu upplagi.
Hægt verður að taka þátt í uppboðinu bæði á staðnum í Gallerí Fold og á netinu. Fylgist vel með á Instagram síðu Landverndar. 
Vegna takmarkaðs upplags hvetjum við áhugasama til að fylgjast vel með á miðlum Landverndar fyrir nánari upplýsingar og uppfærslur.