Loading Viðburðir

« Allir Viðburðir

Lífið í og við Sogið

6 júní @ 08:00 - 14:00
Alviðra- Sogið

Lífið í og við Sogið með Skúla Skúlasyni vatnalíffræðingi

Skemmtilegur viðburður verður í Alviðru laugardaginn 6. júní kl. 14. Þar munum við skyggnast inn í lífheim Sogsins. Prófessorinn og vatnalíffræðingurinn góðkunni, Skúli Skúlason, mun leiða létta fræðslugöngu að Soginu, vatnsmestu lindá landsins.

Dagskráin hefst á hlaðinu í Alviðru. Síðan verður gengið meðfram Ingólfsfjalli og niður að Soginu. Fræðslugangan er ætluð fólki á öllum aldri og börnin eru svo sannarlega velkomin. Takið með viðeigandi hlífðarfatnað og kíkir gæti komið að notum. Við lok göngu verða þjóðlegar veitingar í boði í Alviðrubænum. Skynsamlegt að hafa með flugnanet ef hinar landsfrægu Sogsflugur hafa vaknað til lífsins.

 

Um flugurnar í Sogin orti þjóðskáldið Jónas Hallgrímsson á ferð sinni um landið á fyrri hluta átjándu aldar:

Við Sogið sat eg í vindi,

sækaldri norðanátt,

og þótti þurrleg seta,

þar var af lifandi fátt.

En sólin reis in sæla,

sveipaði skýjum frá;

upp komu allar skepnur að una lífinu þá.

Og svo var margt af mýi —mökk fyrir sólu ber

—að Þórður sortnaði sjálfur og sópar framan úr sér.

(Þórður var bóndi að Úlfljótsvatni og fylgdi Jónasi á þessari ferð)

 

Verið velkomin að Alviðru til njóta fuglasöngs, náttúrulita, friðsældar og fróðleiks um landið sem við unnum.

Alviðra er jörð undir Ingólfsfjalli á móts við Þrastarlund, um 10 km. fyrir norðan Selfoss við gatnamót Biskupstungubrautar og Grafningsvegar. Jörðin er náttúruverndar- og fræðslusetur í umsjón Landverndar.

 

Nánar

  • Dagsetning: 6 júní
  • Tímasetning:
    08:00 - 14:00

Staður