- This viðburður has passed.
Fuglaskoðunarferð í Krýsuvíkurberg, Eystri lækur og Trygghólamýri

- maí, kl. 18:00
Lengd göngu: 6 km
Hækkun: Sára lítil
Tími: 2 klst
Upphafsstaður: Bílastæði við Krýsuvíkurberg (google maps)
Leiðarlýsing: Við fylgjum berginu í austurátt þar til komið er að Eystri læk. Á þessum árstíma er sjófuglalíf og fjör í litskrúðugu berginu hvar verpir m.a. rita, langvía og álka en einnig fýll, lundir, silfurmáfur og toppskarfur. Þaðan fetum við okkur upp með læknum að Trygghólamýri og finnum fyrir annars konar fuglabyggð – spóa, jaðrakan, hrossagauk og sennilega gæsir ofl. Merkilegur og t.t. lítt raskaður votlendisblettur í þessu annars þurra landi.
Gangan er liður í röð gönguferða í Reykjanesfólkvang sem Landvernd og Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands standa fyrir. Tilefnið er 50 ára afmæli fólkvangsins og vekja athygli á tilgangi hans og þeim útiv – istarkostum sem fólkvangurinn geymir. Jafnframt að kynna þetta fjölbreytta og t.t. lítt raskaða svæði suður af Kleifarvatni – heillega landslagsheild, sérstæðar jarðminjar, búsetusögu allt frá landnámi og greinilegar menningarminjar – steinsnar frá höfuðborgarsvæðinu.