Græna Gangan

Sumardagurinn fyrsti 2026 verður tileinkaður náttúru Íslands á allan hátt!
Þetta verður baráttudagur náttúrunnar sem byrjar með öflugri grænni göngu í anda kröfugöngunnar miklu 2013. Við viljum að allir landsmenn sem komast láti sig ekki vanta og gangi með okkur í miðbænum með græna fána á lofti.
Öll náttúruverndarhreyfingin í landinu og önnur félög vinna hörðum höndum að stærstu náttúrugöngu sem haldin hefur verið í fjölmörg ár.
Fólk safnast saman við Arnarhól kukkan 13:30 og við byrjum að ganga niður í Hljómskálagarð klukkan 14:00. Þar tekur á móti okkur hvatning til þess að halda náttúrunni okkar sem hæst á lofti í öllum málum því hún á undir högg að sækja og hún þarf fleiri raddir.
Við viljum að rödd náttúrunnar heyrist yfir holt og hæðir þennan dag og blási lífi í náttúruverndina á Íslandi inn í sumarið
Þetta er dagurinn sem allir ættu að taka frá!
Dagurinn sem við göngum fyrir náttúruna og framtíðina.