Hálendishátíð 2026

Við kynnum dásamlega tónlistarveislu með frábærum listamönnum til styrktar og heiðurs Hálendi Íslands og einstakri náttúru landsins.
Þessu vilt þú ekki missa af. Aðeins 300 miðar í boði. Fyrsta dag sumars.
Miðar í sölu á MidiX.is
Húsið opnar klukkan 19:30 og tónleikarnir byrja klukkan 20:00 í Iðnó
——-
Hálendi Íslands er einstök perla á heimsvísu, hvernig sem á það er litið. Við eigum villtustu víðerni í heimi, við eigum gljúfur og gíga, frussandi fossa og við eigum eldhraun, við eigum drynjandi jökulár og við eigum kyrrð, við eigum grjótharða jökla og bullandi hveri, við eigum eyðimerkur og við eigum safaríkar gróðurvinjar á ólíklegustu stöðum.
Ágóða af tónleikunum verður varið í baráttuna fyrir Hálendi Íslands svo við öll og komandi kynslóðir geti notið dásemda þess.