Loading Viðburðir

« Allir Viðburðir

  • This viðburður has passed.

Vorgöngur- Austurengjahver og Engjahver

9 maí @ 11:00 - 13:00
Göngufólk á Sveifluhálsi

Lengd göngu: 5 km

Hækkun: 80 m

Tími: 2 klst

Upphafsstaður: Við Grænavatn

Leiðarlýsing: Gengið í austur átt frá Grænavatni inn á Austurengjahæð hjá upptökum Vestari og Eystri lækja, lífæð Krýsuvíkur. Þaðan er stefnt á ónefndan útsýnisstað hvaðan sér ágætlega til allra átta – yfir Kálfadal í austri, Kleifarvatn í norðri, Sveifluháls og Seltún í Austri, og fram á Krýsuvíkurberg í suðri. Þá er gengið til baka í vestur átt en stefnt á Engjahver í Austurengjum, vatnsmesta gufuhver landsins, áður en göngunni lýkur við upphafsstað.

Gangan er liður í röð gönguferða í Reykjanesfólkvang sem Landvernd og Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands standa fyrir. Tilefnið er 50 ára afmæli fólkvangsins og vekja athygli á tilgangi hans og þeim útivistarkostum sem fólkvangurinn geymir. Jafnframt að kynna þetta fjölbreytta og t.t. lítt raskaða svæði suður af Kleifarvatni – heillega landslagsheild, sérstæðar jarðminjar, búsetusögu allt frá landnámi og greinilegar menningarminjar – steinsnar frá höfuðborgarsvæðinu.

Nánar

  • Dagsetning: 9 maí
  • Tímasetning:
    11:00 - 13:00

Staður

  • krýsuvik