Aðalfundur Landverndar 2022 haldinn 20. maí

Aurar og birkitré í Morsárdal í átt að Skaftafelli
Aðalfundur Landverndar 2022 fer fram í Reykjavík föstudaginn 20. maí nk. Aðgengi er gott fyrir fólk með hreyfihömlun. Mikilvægt er að skrá sig á fundinn.

Aðalfundur Landverndar 2022

Stjórn Landverndar boðar til aðalfundar samtakanna föstudaginn 20. maí í Tunglinu (3. og 4. hæð), Lækjargötu 2, Reykjavík. Innskráning og afhending atkvæðaseðla hefst kl. 16:00.

Aðgengi er gott fyrir fólk með hreyfihömlun.

Mikilvægt er að skrá sig á fundinn fyrirfram.

Í stjórn Landverndar sitja tíu manns. Á aðalfundi 2022 verður kosið um fimm stjórnarmenn til tveggja ára og einn stjórnarmann til eins árs. 

Allir kjörgengir félagsmenn geta boðið sig fram á fundinum. Þeir sem vilja tilkynna um framboð fyrirfram eru beðnir um að senda tölvupóst á ghg (hjá) hi.is. 

Við hvetjum ykkur til að mæta og hafa áhrif á stefnu og störf samtakanna. Við minnum á að þau sem enn skulda félagsgjöld verða að hafa greitt þau fyrir aðalfund til að tryggja sér atkvæðisrétt og kjörgengi á fundinum. Jafnframt hvetjum við ykkur til að taka nýja félaga með á fundinn. Hægt verður að greiða félagsgjöld á fundinum.

Dagskrá aðalfundar Landverndar

16:00 Húsið opnar
16:30 Aðalfundarstörf

  • Kosning í nefndir fundarins, kjörnefnd, allsherjarnefnd og laganefnd
  • Skýrsla stjórnar
  • Kynning ársreiknings og hann lagður fram til samþykktar
  • Kynning frambjóðenda til stjórnar og kosning 
  • Kosning endurskoðanda og skoðunarmanna reikninga
  • Tillaga stjórnar að lagabreytingu félagsins – kynning og umræða

17:50 Tónlistaratriði
18:05 Ályktanir aðalfundar kynntar
18:30 Kvöldverður og umræður um ályktanir og lagabreytingar
19:15 Hugvekja – Kristín Helga Gunnarsdóttir, rithöfundur
19:35 Ný stefna Landverndar kynnt og lögð til atkvæðagreiðslu
20:00 Fjölmiðlaverðlaun Landverndar veitt
20:10 Niðurstaða stjórnarkjörs
20:15 Kosning um ný lög Landverndar
20:45 Afgreiðsla ályktana
21:00 Önnur mál
21:15 Aðalfundi slitið og boðið upp á léttar veitingar

Fundargögn:
Tillögur að lagabreytingum
Tvær ályktanir sem lagðar verða fram á fundinum
Stefna Landverndar 2021 – 2023 sem lögð verður fram á fundinum

Ársrit Landverndar 2021-2022. Kynntu þér helstu verk samtakanna. landvernd.is
Smelltu á ritið til að lesa.

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd