Aldeyjarfoss_Small-GPO

Afturköllun náttúruverndarlaga mótmælt harðlega

Landvernd hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna ákvörðunar umhverfisráðherra um að afturkalla lög um náttúruvernd.

Yfirlýsing Landverndar vegna ákvörðunar umhverfisráðherra um að afturkalla lög um náttúruvernd:
‘Landvernd mótmælir harðlega ákvörðun umhverfis- og auðlindaráðherra um að afturkalla lög nr 60/2013 um náttúruvernd sem samþykkt voru á síðasta þingi. Í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu kemur fram að ráðherra hyggist fela ráðuneytinu að hefja endurskoðun á náttúruverndarlögunum. Landvernd bendir á að ítarleg heildarendurskoðun laganna fór fram allt síðasta kjörtímabil.
Landvernd krefur ráðherrann um haldbæran rökstuðning við ákvörðun sína um afturköllun, en hann er ekki að finna í fréttatilkynningu ráðuneytisins. Jafnframt fara samtökin fram á það að ráðherra svari því hvaða þætti nákvæmlega hann hyggst láta ráðuneyti sitt endurskoða.

Landvernd benti á í umsögn sinni um frumvarpið síðastliðinn vetur að með þáverandi frumvarpi væri heildsteyptari og skýrari umgjörð komin um vernd íslenskrar náttúru en áður hefur verið hérlendis. Þá fögnuðu samtökin sérstaklega ýmsum nýmælum og skerptum áherslum eða breytingum á einstökum köflum gömlu laganna. Í því sambandi nefndi Landvernd sérstaklega: i) skýrari markmiðssetningu, ii) kafla um meginreglur umhverfisréttar, þ.m.t. innleiðingu varúðarreglu og mengunarbótareglu, iii) aðlögun friðlýsingaflokka að alþjóðlegum viðmiðum Alþjóða náttúruverndarsamtakanna, iv) heimild til friðlýsingar heilla vatnasviða, v) viðbætur og breytingar á kafla um vernd jarðminja, vistkerfa, vistgerða og tegunda, vi) endurbættan kafla um varnir gegn ágengum framandi tegundum, vii) endurbættan kafla um akstur utan vega, viii) nýjan kafla um vöktun náttúrunnar og ix) bætt þvingunarúrræði stjórnvalda til að framfylgja lögunum.
Landvernd telur að vissulega megi endurskoða þætti eins og að færa stjórn friðlýstra svæða undir einn hatt, taka betur á gróður- og jarðvegsvernd í lögunum og teningu við önnur lög sem við koma náttúruvernd og að tryggja að umsagnir fagstofnana um náttúruverndarmál verði bindandi fyrir leyfisveitendur. Þetta kallar þó engan veginn á endurskoðun laganna í heild sinni.Landvernd sér því ekki ástæðu til að afturkalla lög nr. 60/2013 um náttúruvernd.’

Uppbygging og umgjörð lagareldis

Stjórn Landverndar fagnar því að í fyrsta sinn komi fram stefna um lagareldi, til að tryggja umhverfi, vistkerfi og náttúru og stuðla að sjálfbærri nýtingu. ...
Lesa meira

Samgönguáætlun

Landvernd styður bættar almenningssamgöngur og fjölbreyttan ferðamáta, sem fjallað er um í nýrri samgönguáætlun fyrir árin 2024 – 2040. Bent er á að byggja þarf ...
Lesa meira

Hvalveiðar

Landvernd sendi atvinnuveganefnd Alþingis umsögn um frumvarp til laga sem fjallar um bann við hvalveiðum.
Lesa meira

Uppbygging og umgjörð lagareldis

Stjórn Landverndar fagnar því að í fyrsta sinn komi fram stefna um lagareldi, til að tryggja umhverfi, vistkerfi og náttúru og stuðla að sjálfbærri nýtingu. ...
Lesa meira

Samgönguáætlun

Landvernd styður bættar almenningssamgöngur og fjölbreyttan ferðamáta, sem fjallað er um í nýrri samgönguáætlun fyrir árin 2024 – 2040. Bent er á að byggja þarf ...
Lesa meira

Hvalveiðar

Landvernd sendi atvinnuveganefnd Alþingis umsögn um frumvarp til laga sem fjallar um bann við hvalveiðum.
Lesa meira

Hvítbók um skipulagsmál – drög að landskipulagsstefnu

Í landsskipulagsstefnu er sett fram stefna ríkisins um skipulagsmál á landsvísu. Hún tekur til hálendis Íslands, dreifbýlis, þéttbýlis og haf- og strandsvæða. Stefnunni er ætlað ...
Lesa meira

Svona hefur Landvernd áhrif

Landvernd hefur áhrif á stefnumótun og ákvarðanatöku í umhverfismálum með því að skrifa umsagnir, álykta um málefni tengd umhverfisvernd og náttúruvernd. Landvernd krefst þess að farið sé að lögum og hefur látið reyna á nokkur mál fyrir dómi.

Náttúruvernd er loftslagsvernd

Félagar í Landvernd láta sig náttúruna varða. Vertu með í Landvernd og hafðu áhrif.