Akurskóli fagnar Grænfána á Narfakotseylu

Akurskóli hefur verið ,,Skóli á grænni grein“ síðan haustið 2009 og fékk í dag alþjóðlega viðurkenningu og flaggar nú Grænfána í fyrsta sinn. Viðurkenningin er veitt fyrir góða frammistöðu í menntun til sjálfbærrar þróunar og fyrir að leggja sitt af mörkum til þess að efla og bæta umhverfismál innan skólans og í nærsamfélaginu.

Akurskóli hefur verið ,,Skóli á grænni grein„ síðan haustið 2009 og fékk í dag alþjóðlega viðurkenningu og flaggar nú Grænfána í fyrsta sinn. Viðurkenningin er veitt fyrir góða frammistöðu í menntun til sjálfbærrar þróunar og fyrir að leggja sitt af mörkum til þess að efla og bæta umhverfismál innan skólans og í nærsamfélaginu. Það var fulltrúi Landverndar, Gerður Magnúsdóttir, sem afhenti nemendum og starfmönnum Akurskóla Grænfánann í morgun niður í Narfakotsseylu.

Við athöfnina sungu nemendur Þorraþræl og lagið sem unga kynslóðin söng í áramótaskaupi sjónvarpsins 2011. Heitt kakó og kleinur voru í boði fyrir alla. Grænfáninn var síðan dreginn að húni við Akurskóla. Frá upphafi skólahalds í Akurskóla hefur stefnan verið tekin á umhverfisvænan skóla. Hugmyndir frá nemendum og starfsmönnum hafa verið margar og verkefnin ótal mörg. Við athöfnina rakti fulltrúi Grænfánateymisins, Aðalheiður Hanna Björnsdóttir kennari, í stuttu máli þá vinnu sem nemendur og starfsmenn hafa lagt af mörkum síðastliðin tvö ár í þágu umhverfisverndar. Má þar nefna endurnýtingu og endurvinnslu pappírs, moltugerð, kartöflurækt, flokkun úrgangs, hóflega notkun vatns og rafmagns og auk þess hafa verið notuð margnota drykkjar- og mataráhöld í Akurskóla frá stofnun skólans. Í þessu felst að vekja athygli á náttúru- og umhverfisvernd. Aðalheiður sagði jafnframt að ferðalagið héldi áfram og að öll ætluðum við okkur að vinna hörðum höndum að því að viðhalda og bæta umhverfi okkar og vinnubrögð.

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd