Vordagskrá fyrir skólahópa í Alviðru 2021.
Að þessu sinni eru fuglarnir í forgrunni.
Markmið heimsóknarinnar er að vekja áhuga á fuglum, mismunandi lífsháttum þeirra, fjölbreytileika og útliti.
Dagskrá
Gengið er um Þrastaskóg, farið niður að Sogi með stóran sjónauka á öruggum stað og fylgst með fuglum á Soginu. Á leiðinni í gegnum Þrastaskóg er hlustað eftir fuglahljóðum, leitað að fuglasporum og skyggnst eftir hreiðrum í trjánum.
Í Alviðru er ágætt safn uppstoppaðra fugla sem einnig er stuðst við. Þar er hægt að sjá fuglana í návígi og skoða einkenni hvers og eins.
Við hugum að sjálfsögðu einnig að vorkomunni og þeim breytingum sem verða á landinu okkar þegar vorið gengur í garð.
Það er ekki síður markmið að hver og einn nemandi geti notið sín úti í náttúrunni.
Dagskrána má aðlaga mismunandi aldurshópum og eru allir aldurshópar grunnskóla velkomnir.
Bókanir og fyrirspurnir
Senda má allar óskir um bókanir og fyrispurnir á netfangið hjordis(hja)landvernd.is