Baráttufundur til verndar Gálgahrauni 29. nóv. kl. 20

Landvernd vekur athygli á borgarafundi Hraunavina fimmtudagskvöldið 29. nóvember kl. 20 í safnaðarheimili Vídalínskirkju í Garðabæ. Hvetjum alla til að mæta

Landvernd vekur athygli á BORGARAFUNDi sem HRAUNAVINIR standa að um verndun Gálgahrauns gegn veglagningu sem þar er fyrirhuguð. Fundurinn verður fimmtudagskvöldið 29. nóvember kl. 20 í safnaðarheimili Vídalínskirkju í Garðabæ. Hraunavinir beina því vingjarnlega til fólks að það taki með sér smámynt til að styrkja málefnið.

Við hvetjum alla náttúruunnendur að sýna samstöðu og standa vörð um einstaka náttúru innan höfuðborgarsvæðisins. Dagskrá borgarafundarins fer hér á eftir, en sjá nánar í fréttabréfi Hraunavina í viðhengi.

Þá hefur stjórn Landverndar lýst yfir stuðningi við áskorun Hraunavina til Alþingis Íslendinga um að fresta fjárveitingum til nýs Álftanesvegar um Gálgahraun.

Borgarafundur um verndun Gálgahrauns

D A G S K R Á

Gálgahraun og Búrfellshraun: Lovísa Ásbjörnsdóttir jarðfræðingur og Sigmundur Einarsson jarðfræðingur

Jóhannes S. Kjarval og Gálgahraun: ólafur Gíslason listfræðingur

Nýr eða endurgerður Álftanesvegur: Gunnsteinn ólafsson tónlistarmaður

Afhending undirskrifta gegn nýjum Álftanesvegi: Til forseta bæjarstjórnar Garðabæjar, Umhverfisráðuneytis og Vegamálastjóra

Ályktun fundarins.

Fundarstjóri: Eiður S. Guðnason fyrrv. umhverfisráðherra.

Allir sem vilja standa vörð um ósnortið eldhraun, ekki síst nágrannar Gálgahrauns og Búrfellshrauns eru hvattir til að mæta.

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd