Bláfáninn 2018

Handhafar bláfánans 2018.

Sólin hækkar á lofti og sumarið er tími bátsferða, sjóbaða, leiks á ströndinni og jafnvel hvalaskoðunarferða. Íslendingar og erlendir ferðamenn geta nú notið þess að heimsækja fjórtán staði víðsvegar um landið þar sem öryggis- og umhverfismál eru í hávegum höfð hjá handhöfum umhverfisvottunarinnar Bláfánans.

Þrjár strendur, sex smábátahafnir og fimm hvalaskoðunarfyrirtæki með 31 bát, eru þátttakendur í Bláfánaverkefni Landverndar. Verkefnið er alþjóðleg umhverfisvottun þar sem handhafar þurfa að fara í gegnum strangt umsóknarferli og tryggja að öryggi, umhverfisstjórnun og umhverfismennt séu tryggð á hverjum stað fyrir sig. Bláfáninn er rekinn í 45 löndum víðsvegar um heiminn og í fyrra var honum flaggað á 4.423 stöðum.

Allir handhafar Bláfánans á Íslandi frá því í fyrra sóttu um á nýjan leik fyrir árið 2018 og nú hafa niðurstöður Alþjóða Bláfánans borist í hús. Það eru gleðifréttir að allir fjórtan handhafar Bláfánans á Íslandi fá að flagga Bláfánanum í ár og óskar Landvernd þeim til hamingju með árangurinn.

Handhafar Bláfánans 2018

Strendur:

Langisandur Akranesi, Ylströndin Nauthólsvík og Bláa lónið.

Smábátahafnir:

Patrekshöfn Patreksfirði, Bíldudalshöfn, Smábátahöfnin á Suðureyri, Hafnarhólmi á Borgarfirði Eystri, Fossvogshöfn Kópavogi og Stykkishólmshöfn.

Hvalaskoðunarfyrirtæki:

Elding, Specialtours, Whale Safari, Ambassador og Norðursigling.

Alþjóða Bláfáninn

FEE– umhverfismenntasamtök sem reka Bláfánann á alþjóðavettvangi

Bláfánasíða Landverndar

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd