Umsögn Landverndar um tillögu til þingsályktunar um takmarkanir á fjárfestingum í vinnslu jarðefnaeldsneytis, 566. mál.
Landvernd hefur skoðað ofannefnda þingsályktunartillögu og greinagerð með henni. Stjórn Landverndar styður tillöguna heilshugar og þakkar flutningsmönnum fyrir vel unna tillögu. Greinagerð með tillögunni er mjög skýr og gagnleg.
Ef bann við fjárfestingum í jarðefnaeldsneytisvinnslu næði fram að ganga, þó það næði bara til opinberra fjárfestinga, fjármálastofnanna í ríkiseigu og lífeyrissjóða væri það stórt skref í því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda sem tengjast Íslandi. Ísland gæti með því orðið prófsteinn á það fyrir önnur lönd hvernig þess háttar bann gengi fyrir sig.
Starfshópurinn ætti einnig að skoða hvenær raunhæft er að Ísland geti lokið allri verslun með jarðefnaeldsneyti. Það væri mikill fengur fyrir heiminn ef velmegunarríki eins og Ísland gæti sýnt í framkvæmd virkt og velmegandi samfélag óháð jarðefnaeldsneyti. Inn í þess háttar skoðun gætu tillögur sem komið hafa frá ýmsum hópum Landverndar í loftslagsmálum gagnast . Til þess að hætta allri verslun með jarðefnaeldsneyti þarf að taka markviss skref.
Grasrótarhópur Landverndar í loftslagsmálum hefur lagt til eftirfarandi skref sem má hafa til hliðsjónar:
2020 Auka fjármagn í nýsköpun og þróun fyrir notkun hreinna orkugjafa í flugsamgöngum í samstarfi við grannþjóðir.
2023 Banna innflutning á bensín og dísilbílum.
2025 Banna innflutning vinnuvélum og tækjum sem ekki ganga fyrir hreinum orkugjöfum.
2025 Öll opinber framkvæmdasvæði noti eingöngu tæki sem ganga fyrir hreinum orkugjöfum.
2025 Jarðefnaeldsneytislausar almenningssamgöngur á landi.
2030 Fyrsta raffarþegaflug innanlands.
2030 Jarðefnaeldsneytislausar landssamgöngur.
2030 Jarðefnaeldsneytislausar sjósamgöngur.
2035 Jarðefnaeldsneytislaus fiskiskipafloti.
2035 Jarðefnaeldsneytislaust millilandaflugs.
Virðingarfyllst,
f.h. stjórnar Landverndar
Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri
Tengt efni
Tillögur frá nokkrum hópum Landverndar um aðgerðir í Loftslagsmálum
No products were found matching your selection.