Hreinsum Ísland: Verkefnahugmyndir um plastmengun í sjó

Verkefnahugmyndir frá Skólum á grænni grein í tilefni af <a href="plastlausum september og átakinu Hreinsum Ísland.

Landvernd leggur áherslu á að berjast gegn plastmengun í hafi því hún ógnar bæði dýrum og öðrum lífverum. Um 80% af því plasti sem finnst í sjónum kemur af landi og því ýmislegt sem við getum gert til að sporna við þessari þróun.

Í ár ber Alþjóða strandhreinsunardaginn upp á Dag íslenskrar náttúru sem haldinn er hátíðlegur þann 16. september ár hvert. Landvernd hvetur einstaklinga, fyrirtæki og hópa til að taka þátt í baráttunni gegn plastmengun og skipuleggja sína eigin strandhreinsun. Hægt er að skrá sig á hreinsumisland.is.

Í tilefni af átakinu Hreinsum Ísland senda Skólar á grænni grein, öllum grunnskólum landsins verkefnahugmyndir sem gætu gagnast í plastlausum september.

Nemendur og starfsfólk Skóla á grænni grein hafa löngum staðið vaktina og haldið umhverfi skóla sinna hreinu. Við vonum að meðfylgjandi efni geti gagnast í plastfræðslu.

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd