Hvert stefnum við? Fjarfundur Landverndar í upphafi árs

Við bjóðum náttúruverndarfólk hjartanlega velkomið á fjarfund Landverndar á Zoom þriðjudaginn 23. janúar klukkan 20:00.

Fundurinn í byrjun árs er líka frábær vettvangur til að kynnast og spjalla við aðra félaga, starfsmenn og stjórnarfólk og leggja línurnar fyrir baráttuna framundan.

Við viljum endilega fá ykkar sýn á starfsemi Landverndar,  og komast nær því hvernig við getum þjónustað félagana okkar úti á landi.

Dagskrá fundarins

20:00 – 20:20  Áherslur Landverndar á árinu 2024.

  • Landvernd kynnir viðburði og samstarf á næstunni.
  • Landvernd um áherslur í náttúruvernd og stöðu hálendisins.
  • Landvernd á Egilsstöðum um menntaverkefnin.
  • Landvernd um samstarf í umsagnaskrifum ofl.

20:20 – 20:40 Hver er staða náttúruverndarsamtaka úti á landi?

  • Rakel Hinriksdóttir formaður SUNN
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir formaður NAUST
  • Elva Björk Einarsdóttir, Vatnsfjörður og Vestfirðir

20:40 – 21:30 Spurningar – hópastarf – og umræður í lokin. Sameiginleg sýn.

Sjá Facebook viðburð hér.

Hlökkum til að sjá ykkur 🙂

Goðafoss í Skjálfandafljóti.

Orkuskiptahermir

Skoðaðu orkuskiptahermi Landverndar. Orkuskiptin geta farið fram án þess að eyðileggja einstaka íslenska náttúru.
Opna...

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd