Jarðhiti á Íslandi

Jarðhitasvæði eru meðal sérstæðustu náttúrufyrirbæra á Íslandi og njóta hverir og aðrar heitar uppsprettur ásamt lífríki sem tengist þeim sérstakrar verndar, landvernd.is
Jarðhitasvæði eru meðal sérstæðustu náttúrufyrirbæra á Íslandi og njóta hverir og aðrar heitar uppsprettur ásamt lífríki sem tengist þeim sérstakrar verndar.
Jarðhitasvæði eru meðal sérstæðustu náttúrufyrirbæra á Íslandi og njóta hverir og aðrar heitar uppsprettur ásamt lífríki sem tengist þeim sérstakrar verndar, landvernd.is

Á Íslandi er að finna stórbrotin og sérstök jarðhitasvæði sem eiga fáa sína líka í heiminum. Fjölbreytileiki svæðanna er mikill, hvort sem horft er til jarðfræði, líffræði eða litasamsetningar. Kannanir hafa sýnt að yfir 80% erlendra ferðamanna nefnir náttúru Íslands sem helsta aðdráttarafl landsins og þar spila jarðhitasvæði stórt hlutverk.

Sjálfbær ferðamennska

Vernda þarf viðkvæma náttúru jarðhitasvæða og renna styrkari stoðum undir sjálfbæra ferðamennsku á slíkum svæðum.

Öryggi

Mikilvægt er að auka öryggi ferðamanna með betri upplýsingum um aðgengi og umgengni.

Einstök náttúra.

Jarðhitasvæði eru meðal sérstæðustu náttúrufyrirbæra á Íslandi og njóta hverir og aðrar heitar uppsprettur ásamt lífríki sem tengist þeim sérstakrar verndar.

Afar mikilvægt er að tryggja vernd þessara einstöku auðlinda okkar þannig að Íslendingar, erlendir gestir, og komandi kynslóðir geti notið þeirra líka. Þessi svæði eru oft á tíðum sérstaklega viðkvæm fyrir átroðningi og umferð, en eru einnig beinlínis hættuleg ef ekki er farið varlega. Það er því mikilvægt að auka fræðslu um hina sérstöku jarðfræði, líffræði og verndargildi jarðhitasvæða og tryggja öryggi ferðamanna. Þannig má stuðla að ferðamennsku í sátt við umhverfi og náttúru.

Tengt efni

Upplýsingaskilti um náttúru og öryggismál í Reykjadal

Landvernd sá um gerð upplýsingaskilti um náttúru og öryggismál í Reykjadal.
Reykjadalur er einn fjölsóttasti náttúrulegi baðstaður landsins í einstakri og viðkvæmri náttúru.Sameinumst um að vernda svæðið. landvernd.is

Gönguleiðir í Reykjadal

Reykjadalur er einn fjölsóttasti náttúrulegi baðstaður landsins í einstakri og viðkvæmri náttúru. Sameinumst um að vernda svæðið.

Okkar helstu viðfangsefni

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd