Gönguleiðir í Reykjadal

Reykjadalur er einn fjölsóttasti náttúrulegi baðstaður landsins í einstakri og viðkvæmri náttúru.Sameinumst um að vernda svæðið. landvernd.is
Reykjadalur er einn fjölsóttasti náttúrulegi baðstaður landsins í einstakri og viðkvæmri náttúru. Sameinumst um að vernda svæðið.

Funheit náttúra, ylvolg útivist

Reykjadalur er einn fjölsóttasti náttúrulegi baðstaður landsins í afar fögru og friðsælu umhverfi. Það einkennir Reykjadal, líkt og önnur jarðhitasvæði, hve viðkvæmt svæðið er fyrir átroðningi og umferð. 

Setjum vernd svæðisins ávallt í fyrsta sæti, fylgjum merktum stígum og hverfum frá ef aðstæður, t.d. árstími eða tíðarfar, leyfa ekki umferð. Þannig getum við og komandi kynslóðir áfram notið þessa einstaka svæðis. 

Landvernd vill vernda viðkvæma náttúru jarðhitasvæða og hefur styrkt stoðir sjálfbærrar ferðamennsku með upplýsingagjöf til ferðamanna í Reykjadal.

Jarðhiti í Reykjadal

Jarðhiti í Reykjadal og Hveragerði er í rótum útkulnaðrar eldstöðvar sem var virk fyrir um 120.000 árum í rekbeltinu á svipuðum slóðum og Hengill er í dag.

Eldstöðina hefur rekið til austurs frá miðju rekbeltisins og jöklar hafa sorfið hana niður. Eldstöðinni fylgir sprungu- og eldstöðvakerfi sem nær frá sjó í Selvogi norðaustur um Hengilssvæðið um Nesjavelli til Þingvalla. 

Á stærstum hluta Hengilssvæðisins er að finna móberg og móbergsset frá ísöld en einnig basalthraun sem runnu eftir að henni lauk. 

Ölkelduháls er á vatnaskilum milli dala inn af Hveragerði og dala suður frá Þingvallavatni. 

Jarðhiti á svæðinu einkennist af leirugum vatnshverum og kolsýruhverum og víða eru merki um aukna virkni í seinni tíð. 

Í Klambragili eru fjölmargir kolsýruhverir og laugar með miklu rennsli, sem gefa megnið af hita Reykjadalsár. Mörg þessara fyrirbæra njóta sérstakrar verndar samkvæmt náttúruverndarlögum.

Fágætar plöntur og örverur

Jarðhitinn hefur víða áhrif á gróður svæðisins og felst sérkenni hveragróðurs einkum í gróskumiklum votlendissamfélögum við heita læki og laugar og moslendi þar sem þurrara er. 

Ýmsar hitakærar tegundir jurta vaxa á svæðinu og má þar nefna laugadeplu (Veronica anagallis-aquatica) og naðurtungu (Ophioglossum azoricum). Báðar þessar jurtir eru á válista yfir plöntur sem eiga undir högg að sækja á Íslandi. 

Ennfremur finnast ýmsar hitakærar tegundir mosa og smádýra, sumar hverjar á válista. Litríkar og fjölbreyttar hveraörverur setja svip sinn á svæðið og gefa afrennsli frá hverunum ævintýralegan blæ. Þær flokkast sem bakteríur og fornbakteríur og eru sumar hverjar afar fágætar.

Hverafuglar og aðrar sögur

Reykjadalur hefur löngum verið nýttur til beitar og vegna jarðhitans gat fé gengið þar lengur að grænum gróðri en annarsstaðar. 

Í þjóðsögum er getið um svokallaða „hverafugla“ í hverum á Ölkelduhálsi og Hagavíkurlaugum. Þeir voru sagðir litlir vexti, dökkleitir og taldir synda í bullandi hverum. Sagt var að ekki þýddi að sjóða þá, en ef þeir væru látnir í kalt vatn, bragðist þeir sem soðnir væru. Þá segir í Landnámabók að Ingólfur Arnarson landnámsmaður hafi búið hin síðustu ár ævi sinnar á Reykjum í Ölfusi, þá blindur orðinn.

Reykjadalur er einstakt svæði þar sem möguleikar til útivistar eru margir, landvernd.is
Reykjadalur, upplýsingabæklingur. Íslenska
Reykjadalur is an unique site, where you can enjoy walks and natural bathing, landvernd.is
Reykjadalur, info brochure. English

Varúð

Í Reykjadal er mikið um hveri. Gætið þess að stíga ekki á ummynduð leirflög (lituð svæði með útfellingum). 

Yfirborð hverasvæða getur verið mjög ótraust og sjóðandi vatn, leir og gufa leynast víða undir. 

Vinsamlegast fylgið merktum gönguleiðum og sendið ferðaáætlun á www.safetravel.is þegar farið er í lengri ferðir. 

Allar stikur eru númeraðar. Í neyðartilfellum hringið í 112 og gefið upp númer á síðustu stiku. 

Munið að hafa ávallt með ykkur vind- og vatnsheld föt því veður getur breyst með stuttum fyrirvara.

Verndum Reykjadal

Reykjadalur er einn fjölsóttasti náttúrulegi baðstaður landsins í afar fögru og friðsælu umhverfi. 

Það einkennir Reykjadal, líkt og önnur jarðhitasvæði, hve viðkvæmt svæðið er fyrir átroðningi og umferð. 

Setjum vernd svæðisins ávallt í fyrsta sæti, fylgjum merktum stígum og hverfum frá ef aðstæður, t.d. árstími eða tíðarfar, leyfa ekki umferð. 

Þannig getum við og komandi kynslóðir áfram notið þessa einstaka svæðis. Njótið dvalarinnar!

Kynntu þér einstaka náttúru Íslands

Einstök náttúra Íslands lætur engan ósnertan. Njóttu þess að ferðast um landið og skoðaðu jarðhitasvæði, fossa og fjöll. Náttúrukortið sýnir svæði á Íslandi sem til stendur að raska vegna orkuvinnslu. Kynntu þér málið.  

Jarðhiti á Íslandi

Á Íslandi er að finna stórbrotin og sérstök jarðhitasvæði sem eiga fáa sína líka í heiminum. Fjölbreytileiki svæðanna er mikill, hvort sem horft er til jarðfræði, líffræði eða litasamsetningar. Kynntu þér einkenni og öryggismál á jarðhitasvæðum. 

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd