Náttúrukortið er lifandi vefsjá sem sýnir staði sem fyrirhugað er að nýta til orkuframleiðslu eða raska á annan hátt. Náttúrukortið byggir á rammaáætlun og opinberum gögnum.
Svæði í nýtingarflokki eru talin vera betri til virkjana en aðrir staðir. Þó að svæði falli í nýtingarflokk í Rammaáætlun er ekki sjálfsagt að það þar verði virkjað eða að þar sé rétt að virkja. Hvert svæði þarf að rannsaka nánar og sækja um mörg leyfi áður en virkjað er.
Virkjanir sem eiga að skila allt að 9,9 MW ad raforku falla utan rammaáætlunar. Þó þær séu stundum nefndar „smávirkjanir“ þá eru þetta engar smá framkvæmdir.
Uppi eru hugmyndir um ótal vindorkuver um allt land.
Svæði í biðflokki falla yfirleitt í þann flokk vegna skorts á gögnum eða vegna þess að rannsókna er ábótavant og því ekki unnt að ákveða hvort meiri ávinningur sé af því að vernda svæðið eða að virkja til orkunýtingar.
Náttúrukortið sýnir þær virkjarnir, stærri en 10 mw sem eru um allt land.
78% raforkunnar sem kemur frá virkjunum á Íslandi fer til stóriðju. Til stóriðju teljast álver og málframleiðslufyrirtæki.
Mun meiri ávinningur er af því að vernda svæði en virkja þau. Samkvæmt rammaáætlun er verðmæti svæða í verndarflokki hátt og ekki ákjósanlegt til virkjana. Ekki stendur til að virkja á þeim svæðum sem eru flokkuð í verndarflokk.
Úthafseyjan Ísland kúrir norður við heimskautsbaug víðfjarri öðrum löndum. Ekki eru nema rétt 15.000 ár síðan hún var hulin þykkum ísaldarjökli langt í sjó fram.
Mannkynið byggir afkomu sína á auðlindum Jarðar.
Nátturan er undirstaða heilbrigðra samfélaga. Við byggjum alla okkar tilveru á henni. Hningnun hennar þýðir hnignun okkar.
Engin þjóð í heiminum framleiðir jafn mikið rafmagn á íbúa og Íslendingar.
Langbesti virkjunarkosturinn sem stendur til boða er að bæta orkunýtni og styrkja flutningsnetið.

„Hálendið er í alla staði verðmætara villt en virkjað.“
Snorri Baldursson