Langanes er alþjóðlega mikilvægt bússvæði fugla, með einstakt lífríki. Virkjanaáform tengjast áformum um uppbyggingu stórskipahafnar við Finnafjörð.
Austurvirkjun
Áformaður er um 200 MW vindorkugarður á austanverðu Langanesi.
Heimild: Orkustofnun
Brekknaheiði
Áformaður er allt að 300 MW vindorkugarður á Brekknaheiði.
Heimild: Efla og Langanesbyggð
Sauðanesháls
Áformaður er allt að 100 MW vindorkugarður á Sauðaneshálsi, rétt austan Þórshafnar.
Heimild: Efla og Langanesbyggð