Verndarflokkur
Héraðsvötn og Jökulsárnar í Skagafirði eru í verndarflokki Rammaáætlunar.
Verndarflokkur
Héraðsvötn og Jökulsárnar í Skagafirði eru í verndarflokki Rammaáætlunar.
Jökulsárnar í Skagafirði og vatnasvið þeirra eru taldar meðal verðmætustu svæða landsins þegar kemur að menningarminjum, jarðminjum, vatnafari, verðmætum tegundum lífvera, vistkerfum og jarðvegi.
Þar sem árnar Austari-Jökulsá og Vestari-Jökulsá mætast, verða til Héraðsvötn. Til þeirra renna einnig Norðurá, Húseyjarkvísl og margar smærri ár.
Meðal verðmætustu svæða landsins
Jökulsárnar í Skagafirði og vatnasvið þeirra skapa einstaka, lítt raskaða landslagheild. Svæðið hefur gríðarlegt gildi á landsvísu þegar kemur að menningarminjum, jarðminjum, vatnafari, vistkerfum og jarðvegi. Einnig þjóna jökulárnar mikilvægu hlutverki í ferðaþjónustu á svæðinu en flúðasiglingar hafa skapað mikla sérstöðu fyrir svæðið. Bæði Austari og Vestari Jökulsár í Skagafirði eru á lista yfir bestu flúðasiglingaár í Evrópu.
Dýrmætt votlendi
Votlendi á láglendi Skagafjarðar er mikilvægt en það er myndað úr framburði jökulvatnanna sem smám saman bera botnskrið, sand og aur til sjávar.
Lífríki
Ósasvæði Héraðsvatna, þ.e. Skógar, Miklavatn og Áshildarholtsvatn að vestan, Eylendið, Garðsvatn o.fl. að austan, eru alþjóðlega mikilvæg fuglasvæði (Important Bird Areas IBAs). Fuglalíf er mikið meðfram Jökulsánum á láglendi. Þar er mikið heiðagæsavarp og grágæsavarp og að minnsta kosti þrettán fuglategundir á válista.
Á hálendi er að finna plöntuna hreistursteinbrjót (Saxifraga foliolosa) sem er válistategund.
Austara-Eylendið við Héraðsvötn eru einhverjar víðfeðmustu flæðiengjar á Íslandi og á Norðurlöndum. Votlendið við Miklavatn í Skagafirði er á friðlandi.
Svipmyndir úr flúðasiglingu um Austari-Jökulsá
Orravatnsrústir eru sérstæðustu freðmýrar landsins
Á hálendinu norðan Hofsjökuls eru Orravatnsrústir sem eru sérstæðasta freðmýri landsins og búsvæði á lista Evrópuráðsins með alþjóðlegt verndargildi.
Í náttúruverndaráætlun 2004-2008 gerði Umhverfisstofnun tillögur um að Orravatnsrústir og Austara-Eylendið yrði gert að friðlandi og einnig tillögur um búsvæðavernd fyrir Fögruhlíð í Austurdal. Í náttúruverndaráætlun 2009-2013 var aftur lögð fram tillaga um friðlýsingu Orravatnsrústa.
Friðlýstar menningarminjar
Miklar menningarminjar er að finna á svæðinu og margar minjarnar eru friðlýstar, svo sem Einilækjarrústir, Hrafnsstaðir, Hringanes, Hraunþúfuklaustur, Tunga, Kolgrímsstaðir, Sandgil, Selsvellir og Öxl. Villinganesvirkjun hefði haft ófyrirséð áhrif á fornminjar í gljúfrunum þar sem hún var áformuð.
Jökulsárnar í Skagafirði voru færðar úr biðflokki í verndarflokk með ákvörðun alþingis 2023 samhliða endurskoðun á fjórum virkjunarkostun í 3 áfanga rammaáætlunar.
Jökulsárnar í Skagafirði og vatnasvið þeirra eru taldar meðal verðmætustu svæða landsins þegar kemur að menningarminjum, jarðminjum, vatnafari, verðmætum tegundum lífvera, vistkerfum og jarðvegi. Ef Jökulsárnar í Skagafirði Skatastaðavirkjun C – Skatastaðavirkjun D og Villinganesverkjun hefðu verið virkjaðar hefði votlendið á láglendi Skagafjarðar verið í mikilli hættu. Votlendið er myndað úr framburði jökulvatnanna sem smám saman bera botnskrið, sand og aur til sjávar.