Jónsmessuganga í Alviðru 24. júní 2021

Jónsmessuganga í hlíðum Ingólfsfjalls við Alviðru, landvernd.is
24. júní kl. 19:30. Öll velkomin í Jónsmessugöngu um hlíðar Ingólfsfjalls, með útsýni yfir Sogið og Grímsnesið. Tryggvi Felixson veitir leiðsögn.

Velkomin í Jónsmessugöngu um hlíðar Ingólfsfjalls, með útsýni yfir Sogið og Grímsnesið.

Miðvikudaginn 24. júní 2021 kl. 19:30 verður boðið upp á Jónsmessugöngu um hlíðar Ingólfsfjalls undir leiðsögn Tryggva Felixsonar, formanns Landverndar. Þetta er létt ganga þar sem fjallað verður um jarðfræði svæðisins og Ingólfsfjall í vitund þjóðar og Árnesinga.

Eftir gönguna býður Landvernd upp á kakó og kleinur í Alviðru.

Allir eru hjartanlega velkomnir, en gott væri að fá vísbendingu um fjölda gesta svo við biðjum um að staðfesta komu hér. 

Alviðra og Öndvernðarnes II eru friðað land í sameign Árnesinga og Landverndar. Í Alviðru er starfrækt fræðslusetur Landverndar fyrir almenning og skóla. Frekari upplýsingar um Alviðru er að finna hér.

Göngukort, kort yfir gönguleiðir í Alviðru, landvernd.is

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd