Keppni fyrir framhaldsskólanema

Stöndum vörð um náttúru Íslands Landvernd eru frjáls félagasamtök sem starfa að umhverfismálum til að vernda og bæta lífsgæðin í landinu. Landvernd virðir íslenska náttúru og styður sjálfbæra nýtingu hennar. Taktu afstöðu og vertu með! landvernd.is
Keppni í fréttamennsku árið 2008. Ungir umhverfisfréttamenn yre.global/ er eitt af verkefnum FEE (Foundation for Environmental Education), samtökunum sem einnig halda utan um verkefnið um Grænfána (Eco-Schools).

Samkeppnin er styrkt af Umhverfisfræðsluráði og Gámaþjónustunni hf.

Landvernd boðar til samkeppni um umhverfisfrétt í framhaldsskólum landsins.

Verðlaun fyrir bestu fréttirnar:
1. sæti 30.000 kr.
2. sæti 20.000 kr.
3. sæti 10.000 kr.

Ef þátttaka verður mikil kemur til greina að veita fleiri verðlaun. Fréttin á að vera hnitmiðuð grein (e.t.v. með mynd), stutt myndband eða hljóðupptaka, (þ.e. blaða-, sjónvarps- eða útvarpsfrétt). Viðfangsefnið á að vera úr í nærumhverfi nemenda sem þeir rannsaka og skoða og setja í vítt umhverfislegt samhengi.

Unnið verður að því að birta fréttirnar á opinberum vettvangi. Einhverjar þeirra munu birtast í blaði Landverndar, Kríunni, og á heimasíðu samtakanna. Bestu fréttirnar verða þýddar á ensku, í samráði við höfunda þeirra, og sendar til alþjóðlega verkefnisins Ungir umhverfisfréttamenn.

Fréttin skal send, fyrir 1. apríl, á netfangið landvernd@landvernd.is, merkt efni (subject): Ungir umhverfisfréttamenn.

Meira um FEE verkefnið Ungir umhverfisfréttamenn
Ungir umhverfisfréttamenn yre.global/ er eitt af verkefnum FEE (Foundation for Environmental Education), samtökunum sem einnig halda utan um verkefnið um Grænfána (Eco-Schools). Nemendum er ætlað, með aðstoð kennara sinna, að kynna sér og rannsaka viðfangsefni í nærumhverfi sínu, setja það í vítt samhengi og vinna fréttaefni t.d. grein, ljósmynd, útvarpsefni eða myndband á móðurmálinu. Lykilorðin eiga að vera: Skilningur, virkni, jákvæðni. Meginþemu verkefnisins eru: Landbúnaður, borgir, ströndin, orka, úrgangur og vatn. Markmið hvers verkefnis á að vera að miðla upplýsingum til almennings. Á heimasíðu verkefnisins (www.yre.global/) skiptast þátttakendur á upplýsingum og fréttum.

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd