Gæðaskólar á grænni grein – Fundir skólastiga 2021

Gæðaskólar á grænni grein eru leiðandi í menntun til sjálfbærni á Íslandi
Skólar á grænni grein standa fyrir fundinum Gæðaskólar á grænni grein. Hvernig vinna skólar að menntun til sjálfbærni? Velheppnuð verkefni og nýtt námsefni verður kynnt. Fundirnir eru vettvangur skólafólks til að miðla, læra og tengjast öðrum í sömu sporum.

Menntun til sjálfbærni í skólum á grænni grein

Landshlutafundir Skóla á grænni grein fara fram í febrúar og mars 2021 og bera að þessu sinni yfirskriftina Gæðaskólar á grænni grein. Vegna aðstæðna í samfélaginu verða fundirnir rafrænir. Sú nýbreytni verður einnig að fundirnir skiptast eftir skólastigum að þessu sinni en ekki landshlutum og verða því haldnir sérstakir fundir fyrir hvert skólastig auk fundar fyrir aðra skóla (s.s. vinnuskóla, félagsmiðstöðvar og ungmennahús) og fundar fyrir framhaldsskólanemendur í umhverfisnefnd.

Á fundinum kynnum við nýtt námsefni, ræðum um menntun til sjálfbærni og miðlum góðum og praktískum verkefnum frá skólum sem eru á grænni grein.

Öll velkomin

Fundirnir eru vettvangur fyrir skólafólk til að miðla, læra og tengjast öðrum í sömu sporum. Við beinum sjónum að því hvernig skólar vinna að menntun til sjálfbærni. 
Fundurnir eru að þessu sinni opnir öllum, einnig þeim sem eru ekki skráðir á græna grein.  Skólar geta sent eins marga fulltrúa á fundina og þeir vilja. Við mælum sterklega með að allir þátttökuskólar sendi a.m.k. einn fulltrúa á fundina

Fundir hvers skólastigs - Skráning

Hér að neðan eru hlekkir á skráningarform fyrir hvert skólastig ásamt dagsetningum (hver þátttakandi mætir annan daginn fyrir sitt skólastig):

Grunnskólastig
mánudag 1. og fimmtudag 4. febrúar, kl. 13-16

Skráningu lokið

Leikskólastig
mánudag 8. og fimmtudag 11. febrúar, kl. 13-16

Framhaldsskólastig
mánudaginn 1. mars kl. 13-16

 

Fundartími fyrir framhaldsskólanemendur og aðra skóla verða auglýstir síðar.

Dagskrá Gæðaskólar á grænni grein

Grunnskólar

1. og 4. febrúar

13:00 – 13:30 Opnun, stutt skilaboð frá Skólum á grænni grein.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, Umhverfis- og auðlindaráðherra, opnar fundinn. 

13:30 – 14:00 Nýjungar hjá Skólum á grænni grein. 
Þátttakendur velja eina af þremur vinnustofum:

  1. Lifandi náttúra – lífbreytileiki á tækniöld: Nýtt námsefni fyrir yngsta stig þar sem lífbreytileiki er rauður þráður
  2. Ungt umhverfisfréttafólk – gefum unga fólkinu rödd: Verkefni fyrir unglingastig um miðlun upplýsinga um umhverfismál
  3. Skólar á grænni grein – leiðandi í menntun til sjálfbærni: Um Skóla á grænni grein og tengsl verkefnisins við menntun til sjálfbærni

14:00-14:40 Brot af því besta: Reyndir grænfánaskólar kynna verkefni sem snúa að þverfagleika og þátttöku alls skólasamfélagsins.

14:40-15:00 Kaffihlé

15:00-15:40 Brot af því besta: Reyndir grænfánaskólar kynna verkefni sem snúa að þverfagleika og þátttöku alls skólasamfélagsins.   
 
15:40-16:00 20 ára afmælisár Skóla á grænni grein: Hvernig fögnum við saman? Hugstormun.
16:00 Fundarslit

Nánar um landshlutafundi

Landshlutafundir Skóla á grænni grein eru hluti af starfsþróun kennara í þátttökuskólum verkefnisins. Landshlutafundir eru haldnir annað hvert ár á móti ráðstefnu og eru að jafnaði tíu talsins á tíu mismunandi stöðum á landinu. Á fundina mæta fulltrúar frá skólum af sama svæði á landinu. Þetta er liður í því að tengja saman skóla á sama svæði og hvetja til samvinnu og samtals á milli skóla. Þó fundirnir séu sérstaklega miðaðir að skólum í verkefninu eru þeir einnig opnir fulltrúum annarra skóla.

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd