Skólar á grænni grein vinna eftir skrefunum sjö, fimmta skrefið er að samþætta grænfánavinnuna við í námsefnið í skólanum og innleiða grunnþætti menntunar í allt skólastarf.
Skólar á grænni grein leggja áherslu á að allir nemendur fái verkefni sem tengjast með einhverjum hætti þeim þemum sem unnið er að hverju sinni. Jafnframt er mikilvægt að vinna við verkefnið og áherslur þess séu sýnilegar í námskrá skólans.
Í þessu skrefi er mælst til þess að skólar tengi verkefnið hinum sex grunnþáttum menntunar í aðalnámskrá en þeir eru lýðræði og mannréttindi, heilbrigði og velferð, jafnrétti, læsi, sköpun og sjálfbærni. Í raun felur grunnþátturinn sjálfbærni í sér alla hina grunnþættina.
Sjálfbærni snýst ekki bara um umhverfismál heldur eru jafnrétti, lýðræði, mannréttindi og velferð allra Jarðarbúa órjúfanlegur hluti af sjálfbærni. Í raun og veru snýst þetta um að við lifum öll góðu lífi óháð því hvar á jörðinni og hvenær við erum fædd! …og jörðin á svo sannarlega nóg af auðlindum til þess – og gott betur. Við þurfum bara að fara vel með þær og deila þeim með jafnari hætti.
Hafa skal í huga
- Unnu nemendur í öllum bekkjum verkefni sem tengdust þemum og markmiðum grænfánans í skólanum?
- Var vinna við grænfánann tengd markmiðum aðalnámskrár með einhverjum hætti?